kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Virðulegur forseti. Það er unun annað veifið að hlusta á hv. þingmann ræða um uppáhalds skepnu sína sem er kötturinn með mýkt og fótafimi (Gripið fram í.) — leyfa hv. þingmanni að klára ræðu sína í friði — mýkt og fótafimi og svo kemur að rófunni líka. Ég veit það hins vegar að hv. þingmaður getur miklu fremur líkt mér við urriða en nokkurn tíma kött og ætlaðist fremur til þess að sú samlíking yrði nýtt.
Ég er sammála hv. þingmanni í því að það þarf tvo til að semja og það er alveg borðleggjandi að þegar síðasti samningafundur aðila endar á því að bilið breikkar frá fundi þar á undan þá verðum við krafin afstöðu um það hversu lengi við ætlum að láta þetta ganga án þess að aðhafast nokkurn skapaðan hlut. Ég er að lýsa þeirri afstöðu minni hér að ég ætla ekki að búa lengur við óbreytt ástand. Ég ætla að taka afstöðu með sjúklingum í þessari deilu sem ég tel vera búna að þjást nóg í tvo mánuði. Með sama hætti hefur starfsfólk heilbrigðiskerfisins þurft að una því að búa við alls óviðunandi starfsaðstæður og það er sú spurning sem menn eiga líka að ræða hér. Og þegar rætt er um þessa yfirlýsingu, sem ég kann ágætlega, þá hvet ég hv. þingmann til að lesa hana alla og ætla það líka að hann þekki til þeirrar vinnu sem er í gangi, m.a. til þess að við höfum sama skilning á þeim stærðum sem undir eru þegar við erum að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Sá skilningur er ekki einn og sá hinn sami alls staðar þegar upp er dregið. Það er langur vegur frá því. Og af því er hér er fullyrt að það vanti upp á í samanburði við hin Norðurlöndin, hvað hefur hv. þingmaður fyrir sér í því? Hvaða tölfræði liggur þar til grundvallar? Hvaða tölfræði hefur hv. þingmaður fyrir sér í því að launakjör sérfræðinga (Forseti hringir.) hafi verið hækkuð um 23% í lok ársins 2013? Það er bara rugl. Það er ekki rétt.