kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Virðulegi forseti. Við höfum beðið um þessa umræðu núna í tvo mánuði og við erum til í hana hvenær sem er, djúpa og góða umræðu um kjaradeilur og vinnumarkaðinn, en ríkisstjórnin hefur ekki verið tilbúin í hana og ekki verið tilbúin til að eiga hana við okkur. Síðan 19. maí hefur minn flokkur beðið eftir því að fá munnlega skýrslu frá forsætisráðherra um stöðuna á vinnumarkaði. Hún hefur ekki fengist. Þegar hæstv. ráðherra fær gagnrýni frá stjórnarandstöðunni þá byrjar hann að kalla eftir djúpri og góðri umræðu um málið. Menn hafa aldeilis beðið eftir henni hér þannig að ég bið hæstv. ráðherra um að sýna því smávirðingu að við séum að spyrja hann spurninga þótt þær séu óþægilegar.
Virðulegi forseti. Mig langar að nefna eitt og það er að hæstv. ráðherra nefndi að þeim hefði gengið vel í samningalotunni við lækna og þar náð samningum og góðri niðurstöðu. Læknar fengu samkvæmt fréttum um 20% launahækkun plús einhverja potta þannig að sumir fengu meira en það. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvers vegna er ekki gert ráð fyrir í þessu frumvarpi að tímabilið aftur fyrir þá samninga verði tekið til viðmiðunar af gerðardómi?