kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Frú forseti. Mér heyrist hæstv. fjármálaráðherra vera að segja, og það kemur held ég mjög skýrt fram í þessu frumvarpi, að það eigi að miða við hækkanir sem heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sem eru í verkföllum núna eigi að sætta sig við það sem almennt er að gerast núna, ekki það sem gerðist með læknana, þannig að aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem eru núna í verkfalli eigi ekki að geta fengið sams konar hækkun og þeir heilbrigðisstarfsmenn sem voru í verkfalli fyrr í vetur og frábært að ríkisstjórnin samdi við þá.
Er það rétt skilið hjá mér að hæstv. ráðherra vilji ekki setja heilbrigðisstarfsfólk í forgang jafnvel þó að landsmenn vilji setja skattfé sitt í forgang í heilbrigðismálum, jafnvel þó að landsfundur Sjálfstæðisflokksins segi að leggja skuli skattfé fyrst í verkefni sem eru brýn og áríðandi og í örugga heilbrigðisþjónustu og jafnvel að það skuli að leiðarljósi haft að heilbrigðisstarfsfólk er hin raunverulegu verðmæti heilbrigðiskerfisins?