kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Frú forseti. Manni finnst oft að þeir aðilar sem hv. þingmaður nefndi, sem eru svona þetta sjálftökulið, séu aldrei inni í þessari breytu þegar rætt er um að bera ábyrgð á stöðugleika og nú verði allir að vera skynsamir og sýna ábyrgð því annars fari allt hérna á hliðina og það sé þessum láglaunahópum, millitekjufólki og umönnunarstéttum að kenna. Oftar en ekki hefur það líka átt við um kennara og fleiri stéttir sem skipta auðvitað gífurlega miklu máli fyrir samfélagið.
Mér finnst gott að það sé að verða enn meiri vitundarvakning hjá þessum stéttum að láta ekki bjóða sér þetta lengur. Auðvitað vill maður ekki missa neinn úr landi sem hefði viljað vera hérna og leggja sig fram um að gera samfélaginu gagn. En þannig er það bara að með skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart kjörum þessara hópa eru menn að gefa ákveðnum hópum bara svona vink. Farið þið þá bara. Og hvað ætlum við að gera þá? Í hvaða stöðu erum við komin þá sem samfélag ef við erum að missa fullt af mannauði út úr samfélaginu, og hvað ætla menn að gera þá? Í hvern á þá að hringja þegar neyðin verður á sjúkrahúsunum? Hvað ætla menn að gera? Eru menn komnir með einhverja neyðaráætlun ef menn fara að missa fólk frá sér í stórum stíl hvar sem það gæti orðið? Ég ætla ekki að vera að hræða fólk með því en ég held að það sé veruleikinn sem við þurfum líka að hugsa um.