144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[18:38]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þarna er ég algjörlega sammála hv. þingmanni, mér finnst hafa skort mjög á að menn horfi til lengri tíma í þessu máli. Eftir frammíkall fjármálaráðherra áðan við ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar um að menn þyrftu að hugsa um sjúklingana þá velti maður fyrir sér hver hugsi um sjúklingana sem verða hér næsta haust, á næsta ári og inn í nánustu framtíð ef menn taka á deilum með þessum hætti, sem hugsanlega verður til þess að fólk ákveður að leita fyrir sér annars staðar. Þá munum við horfa upp á mjög langvarandi erfiða stöðu. Ég held að menn séu ekki í þessu tilfelli að horfa á stóru myndina og það muni koma okkur í koll, því miður. Ég óttast það.

Það sem mér finnst líka vont í þessu máli er að menn eru ekki búnir að kortleggja nákvæmlega þessa stöðu, þ.e. hvað getur gerst hér. Menn eru heldur ekki búnir að leggja fram neina áætlun um það með hvaða hætti eigi að vinna upp þann hala sem nú þegar er orðinn vegna þessara aðgerða. Mér finnst ríkisstjórnin eigi og verði að líta í eigin barm í þessu, vegna þess að ábyrgð hennar er mjög mikil á því af hverju þetta dróst svona og hefur dregist svona. Með því að segja við ætlum að bíða eftir almenna markaðnum, sem var oft sagt í þessum ræðustól, þá voru menn að segja: Ja, við erum ekki að bjóða neitt, við erum ekki að gera neitt af því að við erum að bíða eftir almenna markaðnum. Þeir settu þetta því vitandi vits allt í biðstöðu þar til almenni markaðurinn næði saman. Svo þegar það gerist þá finnst mér hafa liðið alveg ótrúlega stuttur tími þar til þeir gáfust bara upp og ákváðu að fara í lagasetningu. Það þykir mér miður sem segir mér að það voru aldrei neinar alvöruviðræður í gangi.