kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Mig langar að vinda mér strax í frumvarpið, 3. gr. Frumvarpið sýnir hvers konar útspil þetta er frá ríkisstjórninni. Ef það er sáttatónn og sáttavilji hjá mönnum þá er það sem þeir leggja fram sem sitt fyrsta boð ekki bara: Gerðu eins og ég segi eða ég tek af þér verkfallsréttinn í tvær vikur og svo neyði ég þig til að gera það sem ég segi. Það er ekki fyrsta boð: Nákvæmlega eins og ég neyði þig til að gera, þú ert í nákvæmlega sömu stöðu og þú varst í. Það er ekki fyrsta boð þeirra sem raunverulega vilja leita sátta. En það er það sem þetta frumvarp segir.
Staðan er eins og hún hefur verið. Ég hef heyrt hjá Félagi hjúkrunarfræðinga að það svigrúm sem hefur verið hjá samningsaðilum ríkisins sé einmitt það sem er sett inn í frumvarpið. Aftarlega í frumvarpinu segir um 3. gr.: „Í 1. mgr. er fjallað um þau viðmið sem gerðardómurinn skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun sína og störf. Hann skal í því efni líta til kjara þeirra sem sambærilegastir geta talist að menntun, störfum, vinnutíma og ábyrgð. Þá skal hann hafa hliðsjón af kjarasamningum sem undirritaðir hafa verið frá 1. maí 2015 …“ (Gripið fram í: Bls. 10.) Þetta er á bls. 10 er mér sagt í salnum. Þetta hérna, þ.e. þessi gerðardómur sem er ekki gerðardómur skipaður af aðilum beggja vegna borðsins, nei, aðeins af ríkisvaldinu og af Hæstarétti. Ef hann skipar og setur hlutina þannig upp að það verði einhver raunverulegur fjáraustur, sem sagt forgangsfjáraustur fyrir heilbrigðisstarfsmenn eins og landsmenn vilja, ef hann stillir hlutunum þannig upp er Hæstiréttur mögulega orðinn ábyrgur fyrir því að ganga út fyrir verksvið sitt. Þessu er algerlega stillt þannig upp að þetta er ofboðslega vel rammað inn fyrir ríkið og þeir aðilar sem Hæstiréttur mun skipa eru fulltrúar ríkisins.
Hvaða ramma eiga þeir síðan að starfa eftir? Jú, þeir eiga að hafa hliðsjón af kjarasamningum sem undirritaðir hafa verið frá 1. maí á þessu ári, ekki frá 1. janúar þegar læknar fengu verulega hækkun, nauðsynlega hækkun til að halda sérfræðingunum á Íslandi. Það á ekki að hugsa til þess þegar við ætlum að reyna að halda í hjúkrunarfræðingana. Nei, það á ekki að gera það. Þannig er þetta líka núna, þannig að þetta verður fellt inn í frumvarpið.
Svo kemur: „… almennri þróun kjaramála hér á landi.“ Hver er þessi almenna þróun kjaramála hér á landi? Ef við tökum hjúkrunarfræðinga á að byrja að tala um þessa almennu þróun. Almenn þróun er aðeins aftur til 2006, það er viðmiðunarárið, og hver er þá almenna þróunin síðan þá? Ef við horfum til ársins 2006 þá voru hjúkrunarfræðingar, eins og allar aðrar kvennastéttir á Íslandi, með miklu lægri laun en karlastéttirnar. Við byrjum því á stað þar sem þessi stétt er miklu lægri en hún ætti réttilega að vera. Það er annað viðmiðið sem skal ramma inn.
Við það bætist: „Í ákvæði þessu felst m.a. að við ákvörðun sína geti gerðardómurinn haft hliðsjón af gildistíma þeirra kjarasamninga sem undirritaðir hafa verið.“ Hvað er það? Það er verið að festa þessa samninga til þriggja ára. Það er viðmiðið sem hefur verið upp á síðkastið. Ef einhver í salnum er ósammála mér getur hann komið í andsvör við mig og leiðrétt mig. Ég sé að þingmaðurinn brosir en er ekki tilbúinn að koma í andsvör á eftir. Er hv. þingmaður ekki tilbúinn að leiðrétta mig, koma í andsvör við mig? Hann virðist ekki vilja það. Nei, hann vill það ekki.
Ástæða fyrir því að 1. maí er hafður til viðmiðunar er sú að þá voru helstu kjarasamningar, eldri kjarasamningar, fallnir úr gildi. Það er alveg hægt að gera undanþágu í þessu tilfelli til þess að meta saman heilbrigðisstétt og heilbrigðisstétt, hjúkrunarfræðinga og aðra sem eru í verkföllum í heilbrigðisstéttinni núna og læknana. Það er ekkert mál að gera undantekningu hvað það varðar. Svo segir: „Gerðardómurinn skal jafnframt gæta að stöðugleika efnahagsmála.“ (Forseti hringir.) Já, gerðardómur er skipaður af Hæstarétti og á að hafa stöðugleika í efnahagsmálum sem viðmið. Það er alveg ljóst hver forgangsröðunin er. (Forseti hringir.) Hún er hallalaus fjárlög, stöðugleiki í efnahagslífinu, lækkun skatta, en það er allt í lagi. (Forseti hringir.) Þá segja menn það bara: Það er forgangsatriðið, forgangsröðunin, en ekki fyrsta flokks heilbrigðiskerfi.