kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er slegin. Ég er slegin yfir þeirri þróun sem á sér staði í landinu mínu og það hryggir mig að lesa þetta frumvarp til laga um kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það sem slær mig kannski mest er að sagt er að þetta sé einhvers konar hlé á verkfalli, en hér er verið að setja lög á verkfall og banna tilteknum hópum opinberra starfsmanna að hafa þennan rétt. Skipan gerðardóms og ákvörðun gerðardóms er eitthvað það gerræðislegasta sem ég hef séð á Alþingi. Ég velti fyrir mér hverjum hafi dottið í hug að skrifa svona lagað. Ég vænti þess að það hafi ekki verið sá ráðherra sem flytur þetta mál í þinginu, hæstv. landbúnaðarráðherra, því að það er greinilegt að það hefur lengi staðið til að gera þetta. Við spurðum ítrekað út í það á fundi með formönnum stjórnarflokkanna hvernig stæði á því að þessi tiltekni ráðherra færi með málið, því að sjálfsögðu heyrir það frekar undir forsætisráðherra þar sem þessar stéttir opinberra starfsmanna heyra undir mörg mismunandi ráðuneyti. Eðlileg stjórnsýsla hefði verið að hæstv. forsætisráðherra hefði mælt fyrir frumvarpinu, en ég geri ráð fyrir því að hann hafi verið of upptekinn við að fara á fótboltaleik í kvöld til þess að gera það, sem er auðvitað enn furðulegra miðað við alvarleika málsins.
Það sem er virkilega ámælisvert er hvernig reynt er að taka út úr reiknilíkaninu þá kjarasamninga sem gerðir voru við lækna. Í 3. gr. kemur fram að ákvörðun gerðardóms skuli byggja á kjarasamningum sem undirritaðir hafa verið frá og með 1. maí á þessu ári. Þá er væntanlega verið að miða við þá kjarasamninga sem ekki er enn búið að undirrita og varða ekki opinbera starfsmenn og alls ekki lækna eða framhaldsskólakennara, sem hefði verið eðlilegra að miða við þegar verið var að búa til reiknilíkan um kjör þeirra stétta sem eru hér til umfjöllunar. Mér finnst mjög ljótt að gera þetta, sér í lagi í ljósi þess að verkfallið hjá BHM hefur staðið í meira en tíu vikur og ef að líkum lætur — þið verðið að afsaka að þetta er dálítið ruglingsleg ræða hjá mér, ég er svo þreytt af því að erum við alltaf að vinna á mjög óreglulegum tíma á þessum vinnustað. Við þingmenn höfum reynslu af því að reyna semja við nákvæmlega sömu aðila og félagar í BHM og félagar í FÍH hafa verið að reyna að semja við og það hefur skilað ákaflega litlum árangri, enda er það bara þannig að þeir viðsemjendur sem hefðu átt að ræða við BHM eru væntanlega hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra, en þeir hafa til dæmis lítið beitt sér fyrir því að ná samningum um verklok á þinginu. Aftur á móti koma þeir alltaf hér inn með mjög miklar væntingar um að allir geri eins og þeir vilja en koma í raun og veru lítið til móts við kröfur alls minni hlutans á þingi. Haldnir voru 22 fundir sem báru nákvæmlega engan árangur af því að það kom í ljós að samningamenn frá ríkinu höfðu ekkert umboð. Þannig höfum við líka upplifað það hér, aðilar úr forustuliði stjórnarinnar, og þá á ég við þingflokksformenn, hafa haft gríðarlega lítið umboð til að semja við hina þingflokksformennina, þ.e. þingflokksformenn minni hlutans.
Þegar ég horfi á þessa lagasetningu horfi ég á heildarmyndina og ég horfi á þá hryggðarmynd sem heilbrigðiskerfið okkar er orðið. Heilbrigðiskerfið okkar er í molum. Við vöruðum við þeim mikla niðurskurði sem varð á heilbrigðiskerfinu á síðasta kjörtímabili. Ég man svo vel eftir fundum sem ég sat þegar ég tók sæti í fjárlaganefnd. Ég man eftir þeim sem þurftu að vera límið í heilbrigðiskerfinu, fulltrúum til dæmis frá stóra spítalanum okkar, ég man að fólk var svo miður sín þegar það mætti fyrir nefndina að það var nánast með tár í augunum yfir því hvernig það ætti í ósköpunum að mæta þeim kröfum um niðurskurð sem þá voru uppi. Niðurskurðurinn hefur ekki verið leiðréttur og á sama tíma hefur orðið mjög mikið hrun í kaupmáttargetu af því að lán landsmanna gjörbreyttust á mjög skömmum tíma í kjölfar hrunsins. Eins hefur kaupmáttur launanna ekki haldist í hendur við það sem eðlilegt mætti teljast hjá sumum starfsstéttum. Þegar maður horfir á þessi kerfi okkar, sem eru mörg hver mjög stór og flókin, sér maður að neyðarástand í heilbrigðiskerfinu, sem hefur til dæmis verið hjá heilsugæslulæknum, hefur valdið því að við erum komin með hnykil sem við virðumst ekki geta undið ofan af. Það vantar fleiri heilsugæslulækna mjög víða, sem þýðir að það verður töluvert mikill kostnaður í kerfinu af því að fyrsta viðkomustöð er yfirleitt hjá heilsugæslulæknum áður en farið er í dýrari úrræði. Og núna erum við komin með ginnungagap. Með því að setja lög og sér í lagi — mér þykir leitt og ég bið aðra félaga í BHM sem verið hafa í verkföllum að afsaka að ég nefni bara heilbrigðiskerfið en ég fókusera á það hér. Þar er gríðarlegt neyðarástand. Ég geri mér alveg grein fyrir því aðrir félagar í BHM eiga um sárt að binda og hin erfiðu námslán hafa til dæmis verið þungt ok á þeim félögum sem hafa verið í verkfalli. Ginnungagapið sem við sjáum er að verða einhvers konar svarthol. Það er byggt á þeim veruleika að við erum ekki með neinn hvata fyrir fólk til að mennta sig og vinna í heilbrigðisgeiranum hér á landi, við erum ekki með neinn hvata fyrir fólk til að vinna á Íslandi. Maður sér stöðugt birtan samanburð á stöðu fólks í heilbrigðiskerfinu, sem sagt á Íslendingum sem flust hafa til dæmis til Noregs og þeim sem eftir sitja á Íslandi. Yfirleitt eru vistarböndin þess eðlis að fólk á sér fjölskyldu á Íslandi og á erfitt með að fara héðan vegna stórfjölskyldunnar. En svo eru það margir sem ég hef heyrt í í gegnum tíðina, í gegnum þau ár sem ég hef verið á þingi, sem hafa verið að spá í að fara en eru nú ákveðnir í að fara. Og hvað ætlum við þá að gera? Hvað ætlum við að gera ef við höfum enga til að sinna sjúka fólkinu okkar eða þeim sem verða fyrir slysum? Hvað ætlum við þá að gera? Ætlum við þá að senda alla sjúklingana í einkaúrræði eða bara í beint flug til Noregs? Er það skynsamleg uppbygging á innviðum? Er stöðugleiki í því? Hvað ætlum við að gera þegar fólkið okkar fer? Við sjáum núna aðra fólksflóttabylgjuna frá Íslandi eftir hrun. Það er greinileg ný bylgja, fjöldinn allur af fólki að fara héðan, einkum til Noregs. Hvernig ætlum við að hvetja fólk til að vera áfram á Íslandi, fólk sem hefur menntað sig, sem hefur lagt mikið á sig til þess að geta unnið við umönnun og hjúkrun, til þess að geta unnið sem geislafræðingar eða læknar? Okkur hefur tekist að halda í læknana, í bili. Þeir fengu miklar úrbætur á kjörum sínum. Læknar voru töluvert lengi í verkfalli en hjúkrunarfræðingar hafa verið mjög stutt í verkfalli og það hefur strax orðið hvati til lagasetningar á verkfall þeirra. Það segir manni hversu mikilvægir hjúkrunarfræðingar eru fyrir heilbrigðiskerfið okkar og það eru greinilega þeir starfsmenn sem ríkið metur lítils, augljóslega.
Mér finnst ekki hægt að samþykkja þessi lög eins og þau eru með dagsetningunni 1. maí 2015. Ég skora á allsherjarnefnd, sem málið fer væntanlega fyrir, að breyta þeirri dagsetningu í 1. janúar 2015, þá yrðu þessi gerræðislög strax skárri. Ég vil líka vekja athygli á því að þetta mun ekki leysa langtímavandamál þegar kemur að flótta úr ákveðnum starfsgreinum hér á landi til annarra landa. Ég skora á Alþingi allt, okkur öll, að byrja á að setja grunn undir nýtt heilbrigðiskerfi, grunn sem byggir á þeirri kröfu almennings að sá liður á fjárlögum sem helst ber að forgangsraða sé heilbrigðiskerfið. Það er sá liður fjárlaga sem almenningur vill helst að við röðum fremst og okkur ber að gera það. Við tökum þátt í samneyslu á Íslandi og borgum skatta til þess að hafa hér ókeypis heilbrigðiskerfi, ekki einkavætt heilbrigðiskerfi sem ég veit að er blautur draumur margra hægri manna, þó ekki allra vona ég. Við skulum horfast í augu við það að nú þegar er ferlið við einkavæðingu á heilbrigðiskerfinu langt komið. Það virðist vera sem það sé einlægur ásetningur að hola kerfið svo að innan að það geti ekki staðið uppi, þannig að hægt sé að höggva það og koma hér á miklu meiri einkavæðingu. Af því hef ég miklar áhyggjur. (Gripið fram í: Einkavinavæðingu.) Einkavinavæðingu, nákvæmlega, hárrétt hv. þingmaður.
Ég hef af þessu miklar áhyggjur. Ég hef áhyggjur af því fordæmi sem þessi ríkisstjórn gefur hér. Eins og komið hefur fram í máli hæstv. fjármálaráðherra finnst honum tímabært að hætta með verkföll, þau séu ekki lengur í tísku eða passi ekki við tíðarandann. Það eru mjög margir hægri menn á móti verkföllum, hef ég heyrt í viðtölum við þá. Þá vil ég spyrja, og ég held að það sé mikilvægt að við veltum því fyrir okkur: Hvað eigum við þá að hafa í staðinn? Hvernig getum við tryggt bæði opinberum starfsmönnum og starfsmönnum í einkageiranum réttindi til að sækja rétt sinn til að fá mannsæmandi laun fyrir vinnu sína?