kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Hv. þm. Brynjar Níelsson leggur stundum rökfræðipróf fyrir þingmenn sem hann er að tala við úr ræðustól Alþingis. Ansi er ég hræddur um að á prófi hv. þm. Brynjars Níelssonar mundi hæstv. ráðherra hafa fallið eins og fugl á flugi sem hefur orðið fyrir kúlu.
Ég var sammála því sem hæstv. ráðherra sagði þegar hann lýsti því hvernig æskilegast væri að sjá samningsferlið. Ég er norrænn sósíaldemókrati og það lafir nú taug af slíkum í hæstv. ráðherra líka. Við erum sammála um þetta. Þegar hæstv. ráðherra segir að það sé óæskilegt að opinberi geirinn rífi niðurstöður samninga á almennum markaði, drottinn minn dýri. Hvernig var þetta hér? Það byrjaði þannig að ríkisstjórnin byrjaði á því bókstaflega á fyrstu sex vikum sínum að semja um 25% hækkun — til hverra? Sérgreinalækna. Í kjölfarið komu aðrir læknar (Gripið fram í.) og þeir bentu á sérgreinalæknana og fengu 30%. Framhaldsskólakennarar komu þarna einhvers staðar í millitíðinni og hv. þingmaður sem situr í salnum getur sagt okkur frá því hvað þeir fengu mikið.
Frú forseti. Þetta eru sem sagt sérgreinalæknar, opinberir starfsmenn, læknar, opinberir starfsmenn, og framhaldsskólakennarar, líka opinberir starfsmenn. Hverjar skyldu hafa verið röksemdir fyrir háum launakröfum í almennum samningum í síðasta mánuði? Samningarnir við þessar þrjár stéttir. Hæstv. ráðherra hefði betur farið yfir norræna módelið svolítið fyrr á sínum ferli. Engu af því sem hæstv. ráðherra segir að sé ídeal hefur þessi ríkisstjórn fylgt. Þess vegna erum við í þessari stöðu. Það var hæstv. ríkisstjórn sem dreif upp þessar væntingar.