144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[22:08]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að þetta snýst auðvitað ekki um skoðun mína eða skoðun hans. En ég er ekki í nokkrum vafa um að hvað viðkemur hluta af þeim hópum sem hér eru séu sannarlega almannahagsmunir í húfi. Ég get alveg tekið undir það. Það kann að vera að það séu engir almannahagsmunir varðandi Sinfóníuhljómsveitina eða leikara. Sumir gætu sagt að menningarlegri og andlegri heilsu þjóðarinnar væri hætt komin ef við fengjum ekki að njóta sinfóníunnar (Gripið fram í: Í tíu vikur?) — í tíu vikur, já. Hvar liggja mörkin þar?

Að öllu gamni slepptu gæti vel verið að sumt af þessu geti ekki staðist, ef ég á að setja mig í lögfræðilega gírinn, ég get vel tekið undir það. En hér erum við í aðalatriðum að tala um þær stéttir sem teljast til grunnstoða samfélagsins, fólk sem við getum raunverulega ekki verið án, starfsmenn eða grunnstarfsemi sem við getum ekki verið án nema setja hér allt í uppnám, bæði líf og limi og tökum þar mikla efnahagslega áhættu. Þess vegna tel ég alveg ljóst að varðandi flesta þessa hópa séu sannarlega almannahagsmunir í húfi, en ég ætla ekki að deila við hv. þm. Össur Skarphéðinsson, ég er ekki viss um að almannahagsmunir séu fyrir hendi með því að aflétta verkfalli hjá sinfóníunni eða leikurum.