kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Herra forseti. Hv. formaður nefndarinnar er að samþykkja að það skuli samþykkt nákvæmlega eins og ríkisstjórnin lagði af stað með. Hún segir bara: Já, ég er sammála, þetta er nauðsynlegt. Það eru engar útskýringar. Það að segja að einhver hafi komið fyrir nefndina eru engar útskýringar. Það segir ekki að þetta sé nauðsynlegt. Því var ekki svarað hvort ríkisstjórnin hefði ekki heimildir frá landsmönnum, ekki völd frá landsmönnum til að forgangsraða skattfé í það að bjóða upp á það miklar og bættar kjarabætur að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk sem er í verkföllum núna getur sætt sig við það. Það gæti kostað hátt í 4 milljarða kr., er mér sagt. Hefur ríkisstjórnin ekki lagaheimildir og ekki aðrar valdheimildir til að gera það? Þingmaðurinn hefur ekki svarað þessu. Ég bið vinsamlegast um svar.