144. löggjafarþing — 129. fundur,  13. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[16:36]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að við vissar aðstæður geti ríkisvaldið gripið til lagasetningar til þess að koma í veg fyrir erfiða stöðu sem upp kemur, en menn verða alltaf að gæta meðalhófs og menn verða að vanda sig ákaflega vel. Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þingmanni að þessi lagasetning virkar því verri sem hún er skoðuð betur.

Í þessu tilviki sýnist mér að frá upphafi hafi tilgangur ríkisstjórnarinnar verið að setja málið í þennan áfangastað. Við skulum rifja það upp að þegar deilan hófst við BHM þá var hæstv. fjármálaráðherra ekki einu sinni staddur í landinu, formaður samninganefndar var staddur í Myanmar og sjálfur ríkissáttasemjari lýsti því yfir opinberlega í fyrsta skipti á sínum ferli að það þýddi ekkert að kalla saman fundi vegna þess að ríkisvaldið hefði ekkert fram að færa. Ég man aldrei eftir því að það hafi nokkru sinni gerst áður.

Það sem er náttúrlega ranglátast við þessa lagasetningu er með hvaða hætti henni virðist stefnt að því að skammta mönnum niðurstöðu gerðardóms vegna þess að gerðardómnum eru settar mjög þröngar skorður. Það að leyfa ekki gerðardómnum að taka tillit til niðurstaðna samninga við stéttir, sem eru sambærilegar að því leyti að þær eru heilbrigðisstéttir og hafa háskólamenntun, finnst mér vera ákaflega ósanngjarnt.

Mig langar síðan til þess að spyrja hv. þingmann af því að hún situr í nefndinni. Með hvaða hætti var það rannsakað af hálfu nefndarinnar hvort meðalhófs væri gætt? Þá á ég við þá staðreynd að mér telst svo til að af þeim sautján stéttarfélögum sem fyrirhuguð lög eiga að ná til séu bara fimm í verkfalli. Það hlýtur að gera að verkum að ef ríkið lendir í málaferlum, t.d. fyrir Mannréttindadómstóli, þá verði málsstaða þess ákaflega veik. Er hv. þingmaður sammála mér um að að því leyti (Forseti hringir.) sé það ákaflega veikburða lagasetning sem menn (Forseti hringir.) áforma hér?