kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Frú forseti. Ég get ekki stutt þennan gerning sem hér á að fara fram á eftir vegna þess að ég tel að ríkisstjórnin eigi stóran hlut á ábyrgðinni á þeirri stöðu sem upp er komin. Ég get heldur ekki stutt þetta frumvarp í atkvæðagreiðslunni á eftir vegna þess að ég minnist þess ekki að nokkru sinni hafi verið bundinn endir á vinnudeilur með jafn hróplega ósanngjörnum hætti og kemur fram í þessu frumvarpi. Ég hef aldrei á mínum 25 ára ferli hér nokkru sinni séð frumvarp þar sem gert er ráð fyrir því að það sé skorið með einu hnífsbragði á deilur með þessum hætti, skipaður gerðardómur þar sem annar deiluaðilinn á ekki að fá neinn fulltrúa. Ég minnist þess aldrei að það hafi verið skrifað inn í frumvarp af þessu tagi nánast hvernig niðurstaðan á að vera. Ég taldi að minnsta kosti algjörlega skýrt af ræðu hæstv. ráðherra í upphafi umræðunnar í gær að ekki ætti að taka mið af neinum kjarasamningum nema þeim sem gerðir hafa verið eftir 1. maí. Það skiptir ákaflega miklu máli. Þær stéttir sem eru undir bera sig saman, sem eðlilegt er, við ýmis stéttarfélög sem hafa á undangengnum missirum náð fram umtalsverðum launahækkunum í gegnum samninga og sem segja má að séu sambærilegar stéttir. Það er ósanngirni ef það á að meina gerðardómi að taka tillit til þess. Þess vegna er svo mikilvægt að í þessari umræðu hefur stjórnarandstöðunni tekist að draga fram þann skilning hv. þingmanna stjórnarliðsins á lögunum að þetta sé ekki grundvallarviðmið, að önnur viðmið komi fram í 3. gr. sem ætti að leggja ríkari og meiri áherslu á. Það skiptir höfuðmáli vegna þess að ég tel að ef farið verður að því sem hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir, framsögumaður nefndarálitsins, hefur lagt hér áherslu á séu líkurnar á því að niðurstaðan feli í sér meiri sanngirni töluvert auknar. Það er það jákvæða, en hins vegar líka það eina jákvæða sem hefur komið út úr þessum umræðum.
Þegar menn velta fyrir sér af hverju við erum komin á þennan stað verða menn að byrja á upphafinu. Af því að hæstv. heilbrigðisráðherra er staddur í salnum er ekki hægt annað en að draga það fram að ein fyrstu skref þessarar ríkisstjórnar undir forustu hans voru að gera samning við sérgreinalækna. Ég hef haldið því fram að sá samningur hafi verið 23% og ef hæstv. ráðherra er annarrar skoðunar leggur hann fram gögn sem staðfesta það. Sömuleiðis var gerður samningur við framhaldsskólakennara upp á töluvert drýgri launahækkanir en þær sem sáust í samningum á almennum vinnumarkaði. Það sem skiptir hugsanlega töluvert miklu máli, hugsanlega mestu þegar menn velta fyrir sér stöðunni í heilbrigðiskerfinu, eru samningarnir sem gerðir voru við lækna. Hvað voru þeir miklir? Er hæstv. heilbrigðisráðherra tilbúinn að segja okkur upp á punkt og kommu hversu miklar hækkanir fólust í þeim? Þær voru allmiklar. Ætli þær hafi ekki verið 30% plús? Þannig er algjörlega ljóst (Gripið fram í.) að þetta er það sem hefur verið drifkrafturinn í þær kröfur sem fram komu á almennum vinnumarkaði og sömuleiðis hjá BHM og hjúkrunarfræðingum. Réttlætið sem felst síðan í því að ætla að setja lög um gerðardóm þar sem ekki má taka tillit til þessa er auðvitað ekkert réttlæti. Það er ekkert annað en himinhrópandi ranglæti. Ef menn ætla á annað borð að beita lagasetningu til að binda endi á verkfall verða menn að vanda sig ákaflega vel. Þá verða menn að gæta meðalhófs. Ég spyr hv. þm. Unni Brá Konráðsdóttur hvort hér sé beitt nægilegu meðalhófi. Ég vísa til þess að stjórnarskráin veitir býsna sterka vernd gagnvart samningsfrelsinu. Það liggur auðvitað skýrt fyrir að rétturinn til verkfalls er partur af samningsfrelsinu. 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar ver samningsfrelsið og þar með verkfallsréttinn. Það hefur komið fram í ítrekuðum dómum að sú vernd sem í því ákvæði felst er ekki minni en sú vernd sem felst í mannréttindasáttmála Evrópu. Hann er til dæmis alveg skýr að því er varðar hjá hverjum má banna verkfall og hverjum ekki. Að minnsta kosti hefur það verið skýrt með dómum. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. þess sáttmála er stjórnvaldi heimilt að banna með lögum verkfall þeirra sem eiga að gæta reglu og laga, og stjórnarstarfsmanna segir þar, en það er líka skýrt frekar, það eru þeir sem eiga að fara fram með einhvers konar valdboði. Í dómum sem fallið hafa kemur algjörlega skýrt fram að þegar um er að ræða opinbera starfsmenn er mjög takmörkuð heimild til að banna verkföll allra ríkisstarfsmanna.
Til að gera það þurfa menn að hafa mjög skýrar röksemdir. Það þarf að vera algjörlega ljóst að það er til dæmis gert til að firra glundroða og verja réttindi annarra. Það kann vel að vera miðað við málflutning hv. þingmanna stjórnarliðsins og þær röksemdir sem þeir leggja til grundvallar að þeir geti varið það gagnvart ákveðnum stéttarfélögum. En það eru bara fimm af þessum 17 sem lögin eiga að ná til sem eru í verkfalli. Hvernig er þá hægt að segja að það standist alþjóðlegar skuldbindingar, stjórnarskrána eða það sem við köllum meðalhóf að það er líka verið að setja lög á aðra hópa? Ég er ansi hræddur um, frú forseti, að ef þetta mál rekur einhvern tímann á fjörur erlendra dómstóla muni verða ákaflega fátt um varnir hjá íslenska ríkinu. Þess vegna segi ég að ég efast um að hér sé nægilega tryggilega um hnúta búið til að varnir ríkisins verði traustar ef kemur til málareksturs.
Ég spyr hv. framsögumenn nefndarálitsins: Var kannað hvort gætt væri meðalhófs í nægilega ríkum mæli? Bara til að taka dæmi til að sýna hvað þetta er absúrd spyr ég: Hvers vegna er verið, með vísan í minnisblað landlæknis um stöðu heilbrigðiskerfisins, að setja lög á vinnudeilur leikara og starfsmanna Sinfóníunnar? Þetta rímar ekki alveg í mínum huga. Ég nota þetta dæmi til að sýna fram á hversu götótt og lek þessi löggjöf er.
Frú forseti. Helstu röksemdirnar sem hæstv. ráðherra sem flytur málið beitir bæði í greinargerð með frumvarpinu og sömuleiðis í ræðu sinni í gær eru sóttar í minnisblað landlæknis til ríkisstjórnarinnar. Þar eru dregnar upp alvarlegar afleiðingar vinnudeilunnar og landlæknir kveður mjög skýrt að orði. Hann telur algjörlega nauðsynlegt til skamms tíma að binda enda á þessa deilur. Hann segir við ríkisstjórnina að hún verði að grípa til aðgerða. Það er dálítið fróðlegt að í greinargerðinni er vísað í þetta minnisblað og síðan er sagt, á bls. 5 minnir mig, að í lok greinargerðarinnar komi eftirfarandi fram og þar er tekið fast á af hálfu landlæknis.
Það er svo merkilegt að þegar maður les minnisblaðið til enda sér maður að hæstv. ríkisstjórn hefur sleppt úr lokasetningu minnisblaðs landlæknis. Þar er sagt algjörlega skýrt að ef til þess kemur að vinnudeilunni verði lokið með lagasetningu þurfi eigi að síður að koma fram afdráttarlausar yfirlýsingar um að þegar lagasetningin hefur átt sér stað þurfi að halda samningaviðræðum áfram til að skapa viðvarandi frið innan heilbrigðiskerfisins. Þá finnst mér lágmark í lok þessarar umræðu að fyrir liggi að stjórnvaldið ætli líka að fara að þessum tilmælum, nánast fyrirskipunum, landlæknis um að halda viðræðunum áfram til að gera sitt til að ná viðvarandi friði innan heilbrigðiskerfisins.
Landlæknir hefur skýrt mjög vel í fjölmiðlum að hann telji, alveg eins og hæstv. heilbrigðisráðherra sagði hér í lok læknadeilunnar, að markaðslögmálin kunni að sjá til þess að atgervið innan þeirra stétta sem eru í verkfalli núna innan heilbrigðiskerfisins verði sogað af öðrum þjóðum, öðrum löndum, sem greiða miklu hærri laun. Þetta var helsta röksemdin fyrir því að ljúka læknaverkfallinu með þeim hætti sem þá var gert. Hvers vegna skyldu ekki sömu röksemdir líka gilda gagnvart öðrum heilbrigðisstéttum?
Spurning mín til hv. þm. Unnar Brár Konráðsdóttur í lok ræðu minnar er þessi: Hefur nefndin sem fjallar um þetta gert reka að því og fengið fyrir því tryggingar af hálfu hæstv. heilbrigðisráðherra að ef málinu verður lokið hér á eftir með lagasetningu verði eigi að síður áframhaldandi viðræður til að reyna að skapa það sem landlæknir kallar viðvarandi frið innan heilbrigðiskerfisins?