144. löggjafarþing — 130. fundur,  13. júní 2015.

kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

798. mál
[19:03]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Að því gengnu að nú er búið að hafna frávísun á þessu máli eins og við óskuðum eftir í stjórnarandstöðunni erum við með tvær breytingartillögur, í fyrsta lagi varðandi tímalengdina á samningum sem gerðardómurinn mun úrskurða um, hún er opin í ákvæðinu þannig að það er hægt að hafa hana fjögur ár, sex ár eða tíu ár þess vegna. Við gerum að tillögu okkar að það verði aldrei lengur en eitt ár frá gildistöku þannig að málið þurfi að koma fyrir þingið aftur, vitandi það að þetta er gríðarlega alvarlegt inngrip í samningsréttinn og stjórnarskrárvarinn rétt og er mannréttindamál.

Í öðru lagi, kannski í framhaldi og í tengslum við það sem hér hefur verið umræða um að þegar gerðardómur fari að fjalla um málin séu allir kjarasamningar undir, þar með lækna og framhaldsskólakennara, þá verði tekin út dagsetningin 1. maí 2015 í 3. gr. Í staðinn komi „kjarasamningar seinustu missira en jafnframt gæta þess að stöðugleika efnahagsmála sé ekki raskað“, það sé sem sagt breytt um texta þannig að (Forseti hringir.) það sé algjörlega skýrt og í samræmi við þá (Forseti hringir.) túlkun sem verið hefur hér að það megi horfa til (Forseti hringir.) annarra kjarasamninga en síðustu kjarasamninga á almennum markaði.