áætlun um þinglok.
Herra forseti. „Þannig týnist tíminn,“ orti Bjartmar Guðlaugsson. Mér finnst það eiga mjög vel við núna þessa dagana þegar tíminn týnist hjá ríkisstjórninni og menn eru algjörlega áttavilltir og vita varla hvaða mánuður er eða mánaðardagur. Við héldum veglega upp á aldarafmæli kosningarréttar kvenna og kjörgengi. Er ekki bara rétt að við skipum hér vaskan hóp kvenna til þess að reyna að taka stjórn á þinginu og koma einhverju verklagi á þingstörf og ljúka þessum málum? Mér sýnist að þeir karlmenn sem eru hér í forsvari, hæstv. fjármálaráðherra og fleiri, séu hér með eilífan væl og leggi ekkert til málanna og þeir ættu bara að afhenda konum í sínum flokki og öðrum flokkum það verkefni að ljúka þingstörfum. Það er ekki hægt að koma hérna trekk í trekk og væla yfir því að stjórnarandstaðan hafi eytt svo miklum (Forseti hringir.) tíma í fundarstjórn og þess vegna sé ríkisstjórnin (Forseti hringir.) með allt niður um sig. Það er bara ekki þannig.