áætlun um þinglok.
Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki alveg á ræðuhöldum hæstv. fjármálaráðherra hér undir umræðunni. Ég hef ekki orðið þess var hingað til í samræðum manna að hann væri helsti flöskuhálsinn í málinu eða að stjórnarandstaðan og hæstv. ráðherra ættu eitthvað erfitt með að ná gagnkvæmum skilningi um það hvað væri eðlilegt og sanngjarnt í samskiptum stjórnar og stjórnarandstöðu. Það hafa verið aðrir þrándar í þeirri götu, svo vægt sé til orða tekið. En það má hins vegar hverjum manni vera ljóst að ríkisstjórn sem ekki vill ræða við stjórnarandstöðuna í sex heila daga um það hvernig hún best geti komið málum sínum fram getur auðvitað ekki vænst þess að hún komi málum fram sem hún talar ekki við neinn um hvernig eigi að koma fram. Frumforsendan er sú, hæstv. fjármálaráðherra, að tala saman.