144. löggjafarþing — 134. fundur,  22. júní 2015.

kynbundinn launamunur.

[16:00]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Laun hjá þeim stéttum sem hv. þingmaður kallar kvennastéttir hafa hækkað verulega á síðustu missirum. Laun kennara voru hækkuð umtalsvert og nú er gert ráð fyrir mjög verulegri hækkun launa hjá hjúkrunarfræðingum og öðrum heilbrigðisstéttum. Samanburður við lækna, af því að hv. þingmaður nefnir það, sýnir að hjúkrunarfræðingar eru á sama stað hvað varðar launaþróun og læknar, nú þegar litið er til launaþróunar síðustu tíu ára. Og það er þá áður en þær hækkanir sem nú er verið að bjóða koma til sögunnar, þ.e. eftir hækkanir lækna upp á tugi prósenta og áður en við bætist hækkun til hjúkrunarfræðinga nú er launaþróun þessara stétta sambærileg þegar litið er til síðustu tíu ára. Þess vegna á að líta á þetta sem tækifæri nú til að halda áfram að bæta kjör þessarar kvennastéttar. Það veitir ekkert af því, (Forseti hringir.) við hljótum að vera sammála um það, og hér verður þá stigið risastórt skref til þess.