144. löggjafarþing — 134. fundur,  22. júní 2015.

háskólamenntun og laun.

[16:05]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Það er þó gott að vita að hæstv. ráðherra hefur áhyggjur af þessu, enda væri annað undarlegt. Ég held að það sé ástæða til að hafa verulegar og þungar áhyggjur af þessu án þess að ég ætli að fara í einhverja keppni í áhyggjum við hæstv. ráðherra. Ég held einfaldlega að við séum í alþjóðlegri samkeppni um menntað vinnuafl. Það er slæmt hagfræðilegt módel fyrir þjóðfélag að standa að menntun með kostnaði, bjóða upp á menntun, í okkar tilviki svo til ókeypis menntun í mörgum tilvikum, og hafa svo ekki þjóðfélag sem tekur við og umbunar fyrir þessa menntun þannig að vinnuaflið leitar til útlanda. Við erum náttúrlega að horfa upp á þetta núna, menntað vinnuafl leitar annað þar sem það fær ríkari tekjur fyrir menntun sína.

Þetta er vont. Við kostum menntunina og fólk fer síðan til útlanda með menntunina og borgar skatta þar. Bara út frá þessu þrönga hagfræðilega sjónarhorni (Forseti hringir.) er þetta afleitt. Það verður að vera einhver víðtæk aðgerðaáætlun, finnst mér, til að auka gildi menntunar á vinnumarkaði á Íslandi og það þarf að boða til hennar.