leynilegt eftirlit með almenningi.
Virðulegi forseti. Hér er umræðuefni sem að mínu mati þyrfti meiri tíma eins og svo mörg önnur á hinu háa Alþingi. Mig langar að ræða við hæstv. innanríkisráðherra um forsendur leynilegs eftirlits með almenningi.
Nú hlýtur fólk að vera temmilega sammála um það að fólk hafi rétt á því að vita hvort fylgst sé með því. Faldar eftirlitsmyndavélar eru sem dæmi hreinlega bannaðar á Íslandi, sem betur fer, þannig á það auðvitað að vera. Það eru hins vegar ansi mörg tilvik þar sem leynilegt eftirlit óeinkennisklæddra lögreglumanna þykir eðlilegt. Mig langar að inna hæstv. ráðherra eftir hennar sýn á hvaða forsendur eigi að liggja að baki slíku eftirliti. Þá vil ég ræða sérstaklega nýliðna hátíð, Secret Solstice, þar sem var eitthvað um óeinkennisklædda lögreglumenn og meira að segja var einn herramaður þar sem þótti eitthvað líkur lögreglumanni í útliti sakaður um að vera óeinkennisklæddur lögreglumaður.
Nú lifum við á þeim tímum að myndavélar eru í hverjum síma þannig að menn geta tekið myndir hver af öðrum og því getur tortryggni borgaranna gagnvart hver öðrum aukist við svona aðferðir, sérstaklega að mínu mati ef ekki er um að ræða aðgerðir sem eru nauðsynlegar út frá einhverjum brýnum almannahagsmunum eða í það minnsta vel skilgreindum almannahagsmunum. Þarna var um að ræða vímuefnaeftirlit, vænti ég en hef ekki fengið það beinlínis staðfest en það er jafnan tilefnið þegar svona aðferðum er beitt.
Mér þykir mikilvægt að við höldum til haga umræðunni um mörk borgararéttinda eins og þeirra að fá að vita hvenær sé fylgst með manni gagnvart almannahagsmunum.