144. löggjafarþing — 134. fundur,  22. júní 2015.

dagskrá næsta fundar.

[18:42]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Á dagskrá í dag eru 30 mál. Við höfum hingað til náð að tala okkur aðeins inn í mál númer tvö. Ég sé enga ástæðu til þess, á meðan ekki gengur betur með dagskrána sem hæstv. forseti setur upp, að við séum að rífa af honum dagskrárvaldið. Ég sé ekki nokkra ástæðu til þess. Ég viðurkenni það líka að mér leiðist virkilega að sitja undir köpuryrðum þingmanna í garð hæstv. forseta Alþingis. Þau eru ómakleg og ég held að nær væri að við hvettum hann öll og styddum.

Ég hvet hæstv. forseta til að lengja hér fundartíma. Mönnum liggur mikið á hjarta. Mér finnst eðlilegt að hér sé gefinn allur sá tími sem nauðsynlegur er til þess að menn geti rætt málin og hvet því til kvöldfunda og funda um helgar, ekki veitir okkur af svo að við getum klárað þingið á góðum tíma.