144. löggjafarþing — 134. fundur,  22. júní 2015.

dagskrá næsta fundar.

[18:47]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér var óskað eftir hvatningum til forseta. Það skal ég sannarlega gera. Ég vil hvetja alla þingmenn sem sæti eiga í forsætisnefnd til þess að standa með þingmönnum og eftirlitshlutverki okkar. Nú höfum við ekki fengið að ræða hér í sérstökum umræðum eða fyrirspurnum til munnlegs svars í rúmar þrjár vikur. Hér eru beiðnir um sérstakar umræður. Sú mikilvægasta, vil ég leyfa mér að segja, varðar stöðuna í heilbrigðiskerfinu, sem hv. þm. Jón Þór Ólafsson hefur beðið um og er mjög brýnt að við tökum. Sjálf hef ég lengi beðið eftir því að fá að ræða við forsætisráðherra um verðtryggingu, stærsta loforð Framsóknarflokksins. Nú er hafin stýrivaxtahækkun aftur vegna ótta við verðbólgu og ég held að það sé mjög tímabært að við ræðum þetta mál. Ég vil hvetja forseta til þess að standa með eftirlitshlutverki þingsins og meiri hlutann til þess að styðja þar af leiðandi þessa tillögu.