dagskrá næsta fundar.
Virðulegi forseti. Orðræðan frá hv. þingmönnum Framsóknarflokksins undirstrikar eitt af vandamálunum sem við eigum við að etja hér, það er ekki hæstv. Sjálfstæðisflokkur, heldur er það hæstv. Framsóknarflokkur. Já, hæstvirtur, það er rétt.
Vandi þess flokks er sá að hann kann ekki frið, kann ekki að semja, kann ekki málamiðlanir. Það eina sem hv. eða hæstv. Framsóknarflokkur, eða hvað við eigum að kalla hann, kann er að halda hlutum í deilum og slá sjálfan sig til riddara. Það hefur verið gegnumgangandi mynstur frá upphafi þessa þings eftir því sem ég fæ best séð og vissulega núna í sumar. Það að kenna minni hlutanum um það ber vott um að það sé ekki bara samskiptaleysi milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur milli einstakra framsóknarmanna, jafnvel þótt þeir eigi að heita í framlínu.