dagskrá næsta fundar.
Virðulegur forseti. Það hefur greinilega verið nokkuð viðkvæmt fyrir hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að athyglinni væri beint að þeirri neyðarlegu staðreynd að öll þau mál sem út af standa í þinginu eru mál ráðherra Framsóknarflokksins. Hæstv. ráðherra getur komið hér í ræðustólinn og ausið yfir þingmenn eins og hann lystir. Vandinn er einfaldlega að mál eru býsna seint á ferðinni frá ríkisstjórninni, sum þeirra komin fram löngu eftir að þingi átti að vera lokið, mörgum mánuðum eftir að framlagningarfrestur leið. Hér eru enn til umfjöllunar stór mál frá hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem nauðsynlegt er að ljúka og þó er komið mitt sumar.
Virðulegur forseti. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verður að sakast við einhvern annan en þingmenn um þetta vinnulag, því að það er algerlega ríkisstjórnarinnar sjálfrar.