144. löggjafarþing — 134. fundur,  22. júní 2015.

dagskrá næsta fundar.

[19:16]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að koma fram með ákveðna tilgátu til að reyna að svara þeirri spurningu hvers vegna meiri hlutinn vill ekki greiða atkvæði með þessari tillögu. Ég held nefnilega að það komi í sjálfu sér efni tillögunnar lítið við. Ég held að það snúist meira um hvernig þingið virkar eða virkar ekki, meira um það hvernig það þingfyrirkomulag sem við erum með leiðir af sér þessar deilur og leiðir af sér það ófremdarástand sem er hér viðvarandi og þetta þing er orðið að sumarþingi í reynd. Ég held nefnilega að þinginu hafi mistekist að fjalla um eigin dagskrá og eigin tilgang þegar allt kemur til alls. Mér finnst að þó að hér falli þung orð í dag, og á ég ekki minni þátt í því en hver annar, vona ég að við lítum fram á veginn og reynum að finna lausnir til að láta þetta þing virka. Við skuldum öll íslensku þjóðinni það.

Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.