störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég spurði nýlega innanríkisráðherra hvernig staðið væri að afplánun fangelsisrefsinga og sérfræðiþjónustu við fanga.
Ég hef að undanförnu rætt við fólk sem þekkir vel til þessara mála og hafði grun um að ýmislegt mætti betur fara. Ég er samt sleginn yfir svörum ráðherra. Í þeim kemur meðal annars fram að á síðasta ári hafi liðið að meðaltali 383 dagar frá því að dómur var kveðinn upp og þar til afplánun refsingar hófst. Rúmt ár. Þó er það óumdeilt að eigi fangelsisrefsing að geta stuðlað að því að fangi bæti ráð sitt er afar mikilvægt að hann taki út refsingu sína sem fyrst eftir dóm. Og heilu ári eftir dóm er það raunar svo að sumir hafa bætt ráð sitt og jafnvel stofnað fjölskyldur en þeim þá kippt út úr því og stungið í fangelsi. Hvaða glóra er í þessu?
Í svörum ráðherra segir einnig að samkvæmt nýrri rannsókn eigi tæplega 60% fanga við vímuefnavanda að stríða og að um helmingur þeirra hafi haft einkenni um athyglisbrest og ofvirkni. Og hvernig stöndum við að því að hjálpa þessum einstaklingum að takast á við vímuefnavandann, athyglisbrestinn, ofvirknina og aðrar raskanir og geðræn vandamál?
Í svari ráðherra kemur fram að þeim mikilvægu og erfiðu verkefnum sinni tveir sálfræðingar, tveir félagsráðgjafar, einn námsráðgjafi og tveir sérfræðingar á meðferðargangi á Litla-Hrauni. Sálfræðingarnir tveir og félagsráðgjafarnir tveir sinna 600 einstaklingum. Er það mannúðlegt gagnvart fólki sem líður oft mjög illa og er jafnvel veikt, fólki sem við lokum inni og getur því ekki leitað annað með sinn vanda?
Og hvernig líður aðstandendum þessa fólks með að vita að þetta er svona? Er þetta líklegt til að stuðla að því að fangar fóti sig í samfélaginu eftir afplánun og láti af afbrotum? Nei, að sjálfsögðu ekki. Við verðum að tryggja Fangelsismálastofnun fjármagn til að hún geti leyst þessi mál vel af hendi.
Þar til við höfum lagað þetta legg ég til að við stillum okkur alveg um að nota orðið betrun um fangelsisrefsingar á Íslandi.