144. löggjafarþing — 135. fundur,  23. júní 2015.

veiting ríkisborgararéttar.

796. mál
[22:24]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Unnur Brá Konráðsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar, sem venja er að flytja hér bæði að vori og eins á haustþingi.

Nefndin hefur farið yfir þær umsóknir sem okkur bárust með hefðbundnum hætti og leggur til að 32 einstaklingum verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni. Nefndinni bárust alls 47 umsóknir um ríkisborgararétt á þessu vorþingi.