störf þingsins.
Herra forseti. Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað hér bæði í gær og marga undanfarna daga þar sem þingmenn eru gjarnan svolítið uppteknir af sjálfum sér og því sem fer fram hér innan veggjanna langar mig til að vekja athygli á mörgum þeim sem nota nú eigið líkamsafl til að styrkja ýmis málefni.
Meðal annars er WOW Cyclothon-keppnin haldin núna í fjórða sinn þar sem eru yfir 1 þús. keppendur í 116 liðum sem ætla að hjóla Hvalfjörðinn og yfir Öxi á innan við 72 tímum. Í morgun komu einir 40 niður af Öxi og fengu súpu hjá Guðnýju Ingimundardóttur á Djúpavogi og voru því auðvitað mjög fegnir eftir erfiða hjólaferð. Í ár ætlar þessi hópur að hjóla til styrktar uppbyggingu Batamiðstöðvar á geðsviði Landspítalans á Kleppi.
Núna um mánaðamótin, 30. júní, ætlar 12 manna hlaupahópur að hlaupa hringveginn til að vekja athygli á hárri tíðni sjálfsvíga ungra karla á Íslandi og er það verkefni unnið í samstarfi við Geðhjálp og Rauða krossinn undir yfirskriftinni Útmeða þar sem ungir karlmenn er hvattir til að setja tilfinningar sínar í orð til að stuðla að því að þeir hafni ekki í tilfinningalegu öngstræti með ófyrirséðum afleiðingum. Eins og við vitum allt of vel eru sjálfsvíg ein algengasta dánarorsök ungra íslenskra karlmanna, á aldrinum 18–25 ára, núna á allra síðustu árum. Framlag þessa hlaupahóps verður sem sagt að hlaupa í kringum landið með viðkomu í Vestmannaeyjum á fimm sólarhringum. Hver hlaupari þarf að klára 30–40 kílómetra á dag. Það er mjög óeigingjarnt starf sem þarna er verið að vinna.
Að lokum langar mig að minna á UNICEF sem er meðal þeirra sem verður hlaupið til styrktar í Reykjavíkurmaraþoni, en í ár eiga framlögin sem þar safnast að nýtast vegna neyðarinnar sem skapast hefur í Nepal. Þar hefur komið fram, eins og við þekkjum eftir að jarðskjálftinn (Forseti hringir.) reið yfir, að neyðin er mikil. Ég þakka því dugnaðarfólki sem þarna leggur á sig ómælda vinnu og vil horfa svolítið út fyrir rammann hérna innan húss.