144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[15:55]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Já, það er alveg ljóst að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon fór grísku leiðina eins og við þekkjum hana. Hann bjó til sérverkefni í raun fyrir utan ríkissjóð, fyrir utan samgönguáætlun, fann til þess leiðir og hýsti verkefnið undir sjálfum sér þegar hann var atvinnuvegaráðherra. Það er mjög sláandi.

Þetta er ekki eina dæmið frá síðasta kjörtímabili þar sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon fann leið til þess að fara fram hjá ríkissjóði og ríkisábyrgðarsjóði og fara grísku leiðina. Núverandi ríkisstjórn situr uppi með þær gjörðir og þess vegna er það okkar að bæta þetta mál og koma því á þann stað þar sem það á að vera. En það er kannski ekki nema von að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hafi valið grísku leiðina því að að mér skilst á hans eigin orðum að það hafi verið óskað eftir honum í Grikklandi við að taka til í fjármálum gríska ríkisins. Hann hefur verið fljótur að læra.

Varðandi greinargerðina sem fylgir með þessu frumvarpi þá reikna ég með því að frumvarpið komi úr atvinnuvegaráðuneytinu. Þá vil ég benda hv. þm. Haraldi Benediktssyni á það, af því að hann situr bæði í atvinnveganefnd og fjárlaganefnd, að gera þarf vandað nefndarálit með þessu frumvarpi fyrir 2. umr. því að það er beinlínis rangt sem kemur fram í greinargerðinni um að ekki sé hefð fyrir því að tilgreina sérstaka fjárhæð í lagaheimildum. Það er nú svo, virðulegi forseti, að það er alltaf kveðið á um að tilgreind sé sérstök heimild og fjámálaráðherra er alltaf falin heimild upp að ákveðinni tölu, að taka lán allt að henni. Ég bið því þingmanninn að vakta þetta mál vel í atvinnuveganefnd og gera það betra. Svo ætla ég að halda ræðu hér á eftir til að fara betur yfir þetta mál og reifa það betur.