144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[16:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kýs að koma hingað upp og spyrja hv. þm. Össur Skarphéðinsson og þakka honum fyrir ræðuna sem var öðrum þræði til þess að rifja upp eigið ágæti en fordæma í sömu ræðu aðra sem vildu lýsa yfir sínu ágæti Eins og einhver orðaði það; að vera hálfpartinn upptekinn við það að strauja sína krumpuðu sjálfsmynd.

Ég vil nefna við þingmanninn það sem hann nefndi undir lok sinnar ræðu um framkvæmdir við virkjanir og það stopp sem við erum í. Ég hef aldrei staðið í ræðustól Alþingis og gert lítið úr verkum síðustu ríkisstjórnar. Ég vann á þeim vettvangi sem ég var áður mjög vel með þeirri ríkisstjórn og það hef ég sagt og vitnað um í þessum ræðustól. En ef ríkisstjórnin sem áður sat og forustumenn hennar vilja þakka sér framkvæmdir og verk sem nú eru unnin þá verður hún líka að kannast við verk sín sem koma til með að stoppa eða jafnvel draga úr framkvæmdum á því kjörtímabili sem nú er og í framtíðinni.

Ég las það í góðri bók að (Gripið fram í.) virkjanir hefðu verið færðar úr nýtingarflokki í biðflokk til þess að greiða fyrir Evrópusambandsumsókn. Hv. þingmaður veit manna best um hvaða bók ég er að tala og getur þá brugðist við því. Hefur hann ekki áhyggjur af því að sá gjörningur og það að við komumst ekki áfram með það mál, þ.e. getum sett það á dagskrá og haldið virkjunarframkvæmdum áfram þar sem við eigum ekki hagkvæman virkjunarkost í vatnsafli tiltækan til nýtingar nú, geti orðið til þess að við höfum ekki rafmagn til að selja, burt séð frá stóriðju og þenslu í efnahagslífinu, einfaldlega vegna þess að við erum stöðugt að nota meira rafmagn í heimilishaldi okkar, með aukinni ferðaþjónustu og í þau fyrirtæki sem starfa hér dagsdaglega?