144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[17:03]
Horfa

Eldar Ástþórsson (Bf):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ræða um hv. þm. Steingrím J. Sigfússon eða Grikkland, þó að við hljótum öll að hugsa til grísku þjóðarinnar á þessum erfiðu tímum í sögu hennar og þau gríðarstóru vandamál sem hún stendur frammi fyrir. En ég tek undir það sem kom hérna fram að við tölum hvert við annað og um hvert annað af virðingu, jafnvel þótt við séum þingmenn.

Ég ætla hins vegar að ræða um lagafrumvarpið. Ég set mig ekki upp á móti áframhaldandi uppbyggingu á Bakka og fagna því að framkvæmdir þar séu farnar af stað. En ég get ekki skrifað undir þessi vinnubrögð, að verið sé að veita aukalega 1.400 milljónir af opinberu fé, peningunum okkar í framkvæmdina með þessum hætti. Sirka 200 milljónir af þeirri upphæð eru reyndar verðbætur sem bætast við þær 1.800 milljónir sem Alþingi samþykkti upphaflega til framkvæmdanna, og getum við í þeim efnum þakkað því frábæra efnahagsástandi sem við lifum við hérna á Íslandi. En 1,2 milljarðar, 1.200 milljónir, eru hrein og klár viðbót.

Ég er því sá meðlimur atvinnuveganefndar sem stendur ekki að þessu frumvarpi. Lagafrumvarp meiri hluta nefndarinnar gengur út á að fella einfaldlega út upphæðina sem ráðgert var að verkið kostaði og þingið samþykkti á sínum tíma. Alþingi samþykkti upphaflega að veita 1.800 milljónir til framkvæmdanna. Nú er ráðgert að þær kosti 3.200 milljónir. Er eitthvað sem tryggir það að framkvæmdirnar verði ekki enn kostnaðarsamari og reikningurinn fyrir þeim og það sem bætist við verði ekki sendur til okkar skattgreiðenda að nýju? Þessi vinnubrögð eru ekki í lagi, ekki þegar verið er að sýsla með opinbert fé og ekki upphæðir sem þessar.

Það sem stendur út af frá upphaflegri upphæð sem Alþingi samþykkti til verksins eru samtals 1,4 milljarðar. Þingmenn Bjartrar framtíðar gerðu athugasemdir við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í málinu þegar það kom fyrst inn í þingið fyrir tveimur árum, einmitt vegna þess að ekki var vandað til verksins og undirbúningur þess var ekki nægur.

Ég árétta að ég set mig ekki upp á móti uppbyggingunni á Bakka en mér finnst þessi vinnubrögð léleg, of léleg til að ég geti stutt frumvarpið. Ég er ekki til í að skrifa undir það þegar upphafleg áætlun um 1,8 milljarða hækkar í 3,2 milljarða þá sé skattgreiðendum einfaldlega sendur reikningurinn með þessum hætti og að enginn beri ábyrgð á þeirri hækkun, mismuninum frá þeirri upphæð sem upphaflega var samþykkt á Alþingi til uppbyggingar á Bakka. Ekkert er gert til að tryggja að slík mistök endurtaki sig ekki.

Það var illa staðið að fjárveitingu til verksins á sínum tíma og ekkert í frumvarpinu sem hér er lagt fram gefur til kynna að við ætlum að læra af reynslunni. Verðmiðinn fyrir framkvæmdunum á Bakka er einfaldlega tekinn burt í núverandi frumvarpi og ríkið látið borga brúsann. Verðið gæti þess vegna hækkað enn frekar og skattgreiðendum sendur reikningurinn, kannski 1 milljarður í viðbót, kannski 1,5 eins og við erum að tala um hérna núna. Svona vinnubrögð vega að gagnsæi, pólitískri ábyrgð og almannahagsmunum. Við eigum að gera betur. Þess vegna styð ég ekki þetta frumvarp en ég vona að uppbyggingin á Bakka gangi sem allra best og að vel gangi að laða starfsemi fleiri fyrirtækja á svæðið.