144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[17:15]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því áðan í andsvari hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að hann talar um að það hafi komið í ljós í fjárlaganefnd að Björt framtíð sé eins og ljósrit af Samfylkingunni. Hv. þingmaður getur ekki verið að tala um neinn annan en þann hv. þingmann sem nú stendur í ræðustól Alþingis, sem er eini fulltrúi Bjartrar framtíðar í fjárlaganefnd, og ég hlýt að spyrja: Hvað á hv. þingmaður við? Björt framtíð hefur skilað nefndaráliti í fjárlögum, alltaf skilað sínu sérnefndaráliti, og vissulega unnið mjög vel með bæði Samfylkingu og fulltrúum Samfylkingar og Vinstri grænna, þannig að það sé sagt, það hefur verið virkilega góð samvinna við þá frábæru fulltrúa sem þessir tveir flokkar eiga í nefndinni.

Einnig hefur sú sem hér stendur mætt mjög vel á alla fundi og sinnt, að ég held, því starfi mjög vel. Ég hlýt því að spyrja: Hvað á hv. þingmaður við?