144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[17:48]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Það er akkúrat þetta sem ég var að ræða hér áðan. Ég trúi því að þingmenn sem samþykktu þetta á sínum tíma hafi treyst mati Vegagerðarinnar og treyst mati Siglingastofnunar vegna hafnarinnar o.s.frv. Það er auðvitað það sem liggur fyrir. Þingmenn og ráðherrar treysta faglegu mati á þeim verkefnum sem undir eru hverju sinni. Eins og ég kom inn á áðan og vitnaði til þá kom það fram í umsögn Vegagerðarinnar síðast að þessi kostnaðaráætlun væri bara frumdrög. Ef maður horfir til þess orðs miðað við fyrirliggjandi rannsóknir og þess að tryggja þurfi fjármagn til að klára þetta allt til loka, jafnvel þótt kostnaðurinn reynist meiri en kemur fram í núverandi áætlun, þá hefði það sagt mér að þetta gæti átt eftir að hækka og væri líklegra til að hækka en öfugt.

Hitt er svo aftur annað mál, það eru allt of miklar fjárhæðir þarna undir. Ég get alveg tekið undir þá gagnrýni að það hefði þurft að vera betur um þetta búið hvað það varðar. Það breytir því ekki að þetta var gert, hvort sem það þýðir að fólk telji að það hafi verið farið of snemma af stað eða hvað, og þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma. Ferlið í tengslum við framkvæmdir á Bakka er búið að taka langan tíma og fara úr alls konar hugmyndum í það sem við stöndum frammi fyrir núna. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá var ekki auðvelt að reyna að koma einhverju í gang hér eftir hrunið. Þetta var tímasetningin. Við þurftum að gera þetta þá.