144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[18:16]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þá upprifjun sem hann fór hér í um afdrif rammaáætlunar á milli ríkisstjórna og nefnda þingsins. Ég var búin að gleyma því að fyrrverandi ríkisstjórn hafði sent rammann á sínum tíma til umhverfisnefndar þó að málið heyrði undir atvinnuvegaráðuneyti. Það er stórkostlegt að rifja þetta upp hér og nú vegna þess að það hafa ekki farið neitt ófáir klukkutímar þingsins í að ræða það á þessu kjörtímabili í hvaða nefnd ramminn eigi að vera.

Mér finnst þetta ekki alveg sambærileg mál, virðulegi forseti, því að hér erum við að tala um mikla fjárskuldbindingu fyrir ríkissjóð. Þegar verkefnið fór af stað var áætlað að það ætti að kosta 1.800 milljónir og það var sett undir atvinnuvegaráðuneyti. Það var ekki nóg með það að fjármálaráðuneytið á sínum tíma hefði gert athugasemdir við það og nefnt að það ætti að fara í stjórnkerfið eins og öll önnur jarðgangamál, til innanríkisráðuneytis og fjármálaráðuneytis, heldur benti það jafnframt á að þetta væri ekki víkjandi lán eins og þáverandi atvinnuvegaráðherra, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, færði til bókar og í frumvarpið og þar af leiðandi væri þetta beinlínis ríkisstyrkur og ætti að fara í reikningshald ríkisins sem slíkur. Það er margt skrýtið við þessa framkvæmd.

Virðulegi forseti. Ég verð að segja það að lokum að þessi ágæti hv. þingmaður varð fjármálaráðherra í lok kjörtímabilsins og þá var tækifærið ekki nýtt til þess að setja þetta mál á réttan stað í stjórnkerfinu. Ég spyr hv. þm. Jón Gunnarsson: Er það ekki bara okkar verk, ríkisstjórnarflokkanna sem nú sitja, að lagfæra þessa lagasetningu því að öll viljum við öfluga atvinnuuppbyggingu hringinn í kringum landið? Verðum við þá ekki að fara í þær lagabætur sem þarf að fara í fyrst við erum að taka þessi lög upp nú?