144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[18:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir stórskemmtilega ræðu um þetta mikilvæga mál. Það kemur að vísu á óvart að hann skuli fara að ræða rammaáætlun, en það er nú kannski ástæðan fyrir því að enginn annar hefur viljað ræða það mál við hv. þingmann í nokkuð langan tíma og málið ekki á dagskrá hér í þinginu, og breytingartillögur eða tilraunir hv. þingmanns og félaga hans til að flytja breytingartillögur ekki líklegar til að koma hér á dagskrá. Staðreyndin er sú að það eru ekki aðrir stjórnmálaflokkar sem hafa staðið í vegi fyrir því að farið væri í virkjanir og uppbyggingu í iðnaði, þvert á móti. Síðasta ríkisstjórn hafði verulega forustu í þeim efnum og landaði hér mörgum verkefnum sem eru að skila góðum árangri og kom öðrum vel áleiðis. Sá eini sem hefur varnað uppbyggingu í þessu að undanförnu er formaður atvinnuveganefndar og félagar hans í nefndinni sem hafa komið í veg fyrir að hér væri hægt að afgreiða tillöguna um Hvammsvirkjun sem kom frá verkefnisstjórninni og halda þannig áfram í uppbyggingunni í landinu mánuðum saman.

Annað atriði sem ástæða er til að nefna úr ræðu hv. þingmanns er þessi orðræða um hin hnattrænu áhrif þess að virkja hér á endurnýjanlegan hátt fyrir álver, það sé gott fyrir heiminn í heild. Heldur hv. þingmaður virkilega að Ísland sé eina landið af þeim 200 sem í heiminum eru sem geti framleitt endurnýjanlega orku? Halda menn virkilega að valkosturinn sé bara annaðhvort hrein orka á Íslandi eða óhrein orka í útlöndum? Þingmanninum til upplýsingar þá er framleidd endurnýjanleg orka í öðrum löndum líka, í öllum álfum heimsins, hygg ég, og tugum ríkja. Stórfyrirtæki og leiðandi fyrirtæki í áliðnaði, eins og Alcoa, eru auðvitað að velja um (Forseti hringir.) valkosti í hreinni endurnýjanlegri orku hvort sem það er á Íslandi eða annars staðar. Þannig að þessi uppstilling um góða Ísland og vonda umheiminn (Forseti hringir.) stenst enga skoðun.