144. löggjafarþing — 136. fundur,  24. júní 2015.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

800. mál
[18:57]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég gaf það eftir að fara í andsvar við hv. þm. Kristján L. Möller vegna þess að það fer alveg að koma sá tími að við þurfum að slíta þessum þingfundi.

Nú höfum við rætt málið málefnalega í dag, sem er afar ánægjulegt, og það er að myndast sátt um það. Þingmenn eru raunverulega sammála um að gera þessa breytingu þannig að lagaákvæðin séu skýr hvað varðar valdheimildir hæstv. innanríkisráðherra og fjármálaráðherra, enda ber titill laganna það í sér, þegar hann er lesinn er ekki hægt að skilja hann öðruvísi en að þetta séu heimildarákvæði til fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka, þannig að það sé skýrt, virðulegi forseti.

Erindi mitt hér upp í seinni ræðu er því að óska eftir því að þessu máli verði fyrir 2. umr. vísað til atvinnuveganefndar, sem vonandi gerir þessar tillögur að breytingum og þá með þeim formerkjum sem ég hef farið yfir í ræðum.