loftslagsbreytingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda. Það var gott að þetta mál kom hér á dagskrá Alþingis. Fyrst langar mig að segja það og taka undir orð þingmannsins að sannarlega er þetta eitt alstærsta mál sem við höfum að glíma við og ekki bara við Íslendingar, því að þetta er á heimsvísu. Þetta eru málefni þar sem við eins og allir aðrir getum lagt okkar lóð á vogarskálarnar með að taka þátt í lausn á alheimsvandamáli.
Síðast í gær var í fréttum um þetta, ég held að þetta sé daglega í fréttum, en mig minnir að það hafi verið í Ríkisútvarpinu að það var umfjöllun frá Bloomberg um hlýnun jarðar. Og þar kom fram að það er raunverulega hver og einn sem getur gert betur, það er mest af mannavöldum sem þessi hlýnun á sér stað, þannig að við getum hvert og eitt litið í eigin barm og hver og einn reynt að gera betur í þessum málum.
Spurningarnar snerust um hvað væri verið að gera og ég get glatt þingmanninn sem og aðra þingmenn hér með því að það er verið að vinna mjög ötullega að þessu innan fimm ráðuneyta. Þetta mun verða lagt fram í ríkisstjórn áður en þing fer heim í næstu viku þannig að þá munu þessi markmið okkar koma fram. Og af því að hér var nefnt nágrannaríki okkar, Noregur, og það var alveg rétt sem hv. þingmaður sagði um þau markmið sem Noregur hefur sett fram, en Noregur ætlar hins vegar að fylgja með Evrópu, vera í samvinnu með Evrópuheildinni, og mér finnst mjög líklegt, svo ég segi það, að við munum fylgja Noregi og Evrópu.