144. löggjafarþing — 137. fundur,  25. júní 2015.

staða sparisjóðanna.

[11:04]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra skilur mikilvægi sparisjóðanna með nákvæmlega sama hætti og ég. Þess vegna verð ég að lýsa hryggð minni yfir því að ríkisstjórnin hafi ekki hagað sér í samræmi við þennan skilning. Það er einfaldlega staðreynd að sparisjóðakerfið er nánast fallið á vakt hæstv. fjármálaráðherra. Það er staðreynd að undir forsæti hæstv. forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem hefur marga sparisjóði í sínu kjördæmi, eru sparisjóðirnir í reynd að falla þessa dagana.

Hæstv. ráðherra kennir einkaframtakinu um og segir að það hafi verið óskaplega svifaseint. Rétt er það hjá honum að menn hafa ekki um langa hríð eftir bankahrunið haft mikla trú á sparisjóðakerfinu. En sú trú var að glæðast og í þremur tilvikum voru komnir fjárfestar sem höfðu fjármagn, bæði innlent og erlent, og voru reiðubúnir til þess að festa í sparisjóðunum og sáu viðskiptatækifæri en þeir gerðu það ekki vegna þess að í ljós kom að reikningarnir voru allt öðruvísi en menn töldu.

Þá spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hver var á vaktinni? Er ekki Fjármálaeftirlitið í þessu landi? Hvar (Forseti hringir.) var það?

Ég spyr hæstv. ráðherra líka: Hvað með þá fjóra sem eftir eru? Hver er afstaða hans til framtíðar (Forseti hringir.) þeirra?