nálgunarbann.
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð þá frétt sem hv. þingmaður vitnar til í máli sínu en hún er engu að síður að tala um málaflokk sem er viðkvæmur og er í sjálfu sér alltaf til ákveðinnar skoðunar. Ég get auðvitað ekki tjáð mig um einstök mál.
Núna er ekki sérstök endurskoðun í gangi, ef verið er að spyrja að því, út af þessum tiltekna málaflokki. Hins vegar er það þannig í innanríkisráðuneytinu og það á við um þennan málaflokk í heild sinni, bæði nálgunarbann og brot gegn konum almennt, að stöðugt er verið að fara yfir það og skoða hvort ástæða sé til og hvernig eigi að breyta hlutum. Oft er líka spurning hvernig lögum er framfylgt. Það hefur líka verið ákveðin þróun í því. Við höfum séð það, t.d. ef við lítum til lögreglustjórans í Reykjavík, að farið er að setja aukinn kraft eða aukna áherslu á tiltekna tegund brota og þá má segja sem svo að þau mál komist alltaf betur og betur í kastljósið þannig að þetta er líka spurning um að mál séu sett í ákveðinn forgrunn.
Ég get fallist á það með hv. þm. Brynhildi Pétursdóttur að þetta mál sé þess eðlis að það sé full ástæða fyrir okkur að skoða það. Ég geri ráð fyrir því að við munum gera það. Ég hef ekki tekið ákvörðun um það á næsta þingi nákvæmlega hvaða mál ég set sérstakan fókus á í þessum málaflokki en það kann vel að vera að við sjáum eitthvað sem snýr að þessu.