144. löggjafarþing — 137. fundur,  25. júní 2015.

lokafjárlög 2013.

528. mál
[15:03]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef setið í borgarstjórn og á þingi og get lofað hv. þingmanni því að það er miklu skemmtilegra að vera hér en þar, en það er önnur saga. Ég ætla að biðja hann um að láta sig aldrei fallast í þá freistni að bjóða sig fram til sveitarstjórnar, ömurlegasta hlutskipti nokkurs stjórnmálamanns er að vera í minni hluta í stjórn Reykjavíkurborgar.

Það sem hv. þingmaður var að segja, eða ég skildi hann þannig, er að til dæmis í Reykjavíkurborg þar sem er opinber stefna meiri hlutans að taka upp opið bókhald sem borgararnir geta skoðað sé það tæknilegum annmörkum háð. Það þarf hugsanlega að skipta um tölvukerfi og leggja í töluverðan kostnað. Þá langar mig til þess að spyrja, sem ég er viss um að hv. þingmaður veit meira um og hefur skoðað: Yrði það þá rosalegum kostnaði háð og væru á því margir tæknilegir annmarkar, mundi það taka langan tíma að umbreyta ríkiskerfinu með þeim hætti sem við höfum verið að tala um hér?