vistvæn vottun matvæla.
Virðulegi forseti. Það er rétt að umræða hér um vistvæna vottun eða reglugerð sem sett var á síðustu öld er, eins og hefur komið fram hjá hv. fyrirspyrjanda, sannarlega gömul og við athugun fyrir rúmu ári kom í ljós að í raun og veru enginn þeirra eftirlitsaðila sem átti að fara með eftirlitið sinnti því nægilega. Þá var farið í að kalla saman þá aðila sem hafa nýtt þetta og farið yfir hvort ekki væri í sjálfu sér óþarfi að vera með opinbera reglugerð um eitthvað sem á sínum tíma var sett fram til að sýna og votta að vistvæn framleiðsla íslenskra landbúnaðarafurða væri eitthvað annað og meira og betra en iðnaðarframleiðsla frá öðrum ríkjum — sem hún er sannarlega. Ég held að það hafi unnið sér svolítinn sess í samfélaginu og menn vita af því.
Nú höfum við sett löggjöf um dýravelferð og verið að vinna að reglugerðum sem er búið að setja varðandi allar búfjártegundir og dýrategundir þar sem við göngum auðvitað skrefinu lengra og verðum kannski komin með það ástand að reglugerðir hér eru þær hörðustu sem við þekkjum í hinum vestræna heimi, hvað þá annars staðar frá. Við höldum að sjálfsögðu áfram á þeirri braut að íslenskar landbúnaðarafurðir og þær afurðir sem við erum að vinna standist alla þá staðla sem menn settu upphaflega í vistvænni vottun.
Hins vegar hefur verið vinna í gangi með þeim aðilum sem hugsanlega mundu vilja halda því áfram, þessari vottun, og það er rétt sem kom fram hjá hv. fyrirspyrjandi að þá væri eðlilegt að það yrðu hagsmunasamtök þeirra (Forseti hringir.) sem gerðu það. Þeirri vinnu er ekki lokið og þess vegna höfum við ekki afnumið reglugerðina enn sem komið er, en það verður væntanlega næsta skref.