144. löggjafarþing — 138. fundur,  29. júní 2015.

náttúruvernd.

751. mál
[11:14]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samstarfið hefur verið mjög gott og það hefur verið sameiginlegur skilningur allra nefndarmanna að halda málinu í þeim farvegi sem það hefur verið. Ég þakkaði ráðuneytinu hér áðan fyrir mjög faglega og vandaða vinnu.

Hér var samkomulag um að fresta þessu máli, það var skýrt samkomulag. Mér fannst því undarlegt að stjórnarandstaðan skyldi taka þetta mál og vilja ræða það þvert ofan í samkomulag sem var um að fresta gildistökunni.

Það sem ég er bara að benda hæstv. ráðherra á og öðrum þingmönnum er að það mikilvægasta af öllu hlýtur að vera að vinna áfram faglega að því að gera góð náttúruverndarlög, að ná sátt um þá fimm þætti sem enn standa út af borðinu. Mér skilst að ágreiningur hafi minnkað verulega og ég tel það vera gott en mér er til efs að það sé málinu til bóta að hafa það innan einhvers sérstaks tímaramma. Ég held að það skaði (Forseti hringir.) málið. Ég vonast til að nefndin fái það svigrúm (Forseti hringir.) sem hún þarf til að klára þetta mjög svo mikilvæga (Forseti hringir.) mál.