144. löggjafarþing — 138. fundur,  29. júní 2015.

dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.

644. mál
[15:40]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Ásmundur Friðriksson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, með síðari breytingum (leyfisveiting færð til Matvælastofnunar, innleiðing reglugerðar.)

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið fjölda aðila á sinn fund.

Samkvæmt 2. mgr. 10. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim er ráðherra heimilt að veita undanþágur til innflutnings á þeim vörum sem taldar eru upp í a–e-lið 1. mgr. 10. gr., að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og að fengnum meðmælum Matvælastofnunar. Innflytjendur vörutegundanna þurfa samkvæmt þessu að senda beiðni til ráðuneytisins sem aflar umsagnar Matvælastofnunar og svo hefur ráðuneytið gefið leyfið út. Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að Matvælastofnun verði heimilt að veita leyfi til innflutnings á framangreindum vörum án aðkomu ráðuneytisins. Verði frumvarpið að lögum verður umsóknarferlið því einfaldara.

Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að 29. gr. a laganna verði orðuð þannig að ráðherra geti með reglugerð innleitt í íslenskan rétt reglugerðir Evrópusambandsins um aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem eru ekki ætlaðar til manneldis. Gildandi ákvæði er bundið við tilteknar gerðir en fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að nokkrar gerðir á þessu sviði bíði þess að verða teknar upp í EES-samninginn. Verði frumvarpið að lögum getur ráðherra innleitt þær án þess að lagabreytingu þurfi til.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta rita hv. þingmenn Kristján L. Möller, sem er framsögumaður nefndarinnar, Jón Gunnarsson formaður, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Haraldur Benediktsson, Ásmundur Friðriksson, Róbert Marshall, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir.