sala fasteigna og skipa.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um sölu fasteigna og skipa og sömuleiðis breytingartillögu.
Það mál sem hér er um rætt er lagt fram í frumvarpi sem er upp á 30 greinar og greinargerð á 27 blaðsíðum þar á eftir. Ég ætla í þessari framsögu minni fyrst og fremst að vísa til nefndarálitsins og hnykkja á örfáum atriðum. Nefndarálitið er nokkuð langt og tel ég óþarfa að lesa það upp því að það liggur þegar fyrir í þingskjölum.
Frumvarp af þessu tagi hefur komið nokkrum sinnum fyrir þingið, en að þessu sinni er það lagt fyrir í heilu lagi með heildstæðri greinargerð sem staðið getur ein og sér sem skýringargagn með þessum lögum.
Í frumvarpinu eru lagðar fram nokkrar breytingar á reglum um menntun fasteignasala, þ.e. að fasteignasalar skulu ljúka 90 eininga námi, sem er hálft próf til BA- eða BS-prófs í háskóla. Ég bendi á í því samhengi að margir fasteignasalar eru viðskiptafræðingar, lögfræðingar og endurskoðendur eða hafa sambærilega menntun. Gerðar eru miklar kröfur í prófum sem nemendur þurfa að þreyta til að öðlast löggildingu. Frumvarpið tekur á nokkrum breytingum þarna.
Eitt af því sem mikið var rætt um í umsögnum og af þeim sem komu fyrir nefndina var starfsemi verktaka á fasteignasölum, að skýrt væri kveðið á um að aðkomu verktaka og reynt að þrengja að þannig að um skýrt ráðningarsamband væri að ræða. Jafnframt gæti fasteignasali ekki framselt nema örlítinn og þá veigaminni þætti í starfsemi sinni. Þá má benda á að nokkuð var rætt um það í þessu samhengi að skýrt sé kveðið á um að fasteignasala beri að gæta hagsmuna beggja aðila, kaupanda og seljanda, í hvívetna og gæta þess að leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þessa og bendir á að í 15. gr. er kveðið á um að fasteignasali skuli liðsinna báðum aðilum, seljanda og kaupanda, og að honum beri að gæta réttmætra hagsmuna þeirra, auk þess að haga störfum sínum í samræmi við góðar viðskiptavenjur. Undir það vill nefndin taka og ítreka.
Bent var á að nokkuð hefur verið um að fólk með sakaferil komi til starfa sem sölufulltrúar. Nefndin telur mikilvægt að neytendur geti treyst því að þeir sem sinna störfum þessum séu ekki á sakaskrá vegna ákveðinna brota á sama hátt og fasteignasalar með löggildingu. Leggur nefndin því til að þeirri kröfu verði bætt við 2. mgr. 8. gr. frumvarpsins eins og þar stendur nú og þar sem gerð er grein fyrir heimildum fasteignasala til að fela lögmönnum ákveðin verkefni.
Umsýslugjald. Fram komu þau sjónarmið að ganga þurfi lengra til að skýrt komi fram að fasteignasala sé óheimilt að áskilja sér einhliða þóknun af gagnaðila fyrir þá umsýslan sem er eðlilegur þáttur af samningsgerð við kaup og sölu fasteigna. Nefndin fagnar því að skerpt hefur verið á réttarsambandi fasteignasala, seljanda og kaupanda með orðalagsbreytingu og ítarlegum skýringum í greinargerð með frumvarpinu sem nú liggur fyrir og telur þær breytingar til þess fallnar að eyða þeirri óvissu um umsýslugjald í fasteignaviðskiptum sem verið hefur í umræðunni.
Þá var sömuleiðis áréttað að sú þjónusta sem veitt er skuli ávallt gefin upp sem endanlegur kostnaður með virðisaukaskatti, svo það komi skýrt fram, þannig að þeir sem greiða skuli fyrir þjónustuna viti hvert er hið endanlega verð með virðisaukaskatti.
Í frumvarpinu er lagt til að afnuminn verði einkaréttur fasteignasala til að hafa milligöngu um sölu atvinnufyrirtækja annarra en hlutafélaga en kveðið er á um í gildandi lögum. Bent er á að fasteignasalar geta áfram sinnt þessum störfum þótt þau falli ekki undir einkarétt þeirra. Það er mat nefndarinnar að þessi ráðstöfun sé til bóta þar sem vandséð er að menntun og reynsla fasteignasala veiti þeim meiri sérþekkingu til sölu atvinnufyrirtækja en öðrum, svo sem endurskoðendum og viðskiptafræðingum. Fram komu þau sjónarmið að með þessum breytingum væri milliganga um sölu atvinnufyrirtækja annarra en hlutafélaga þó ekki leyfisbundin.
Þá er örlítið fjallað um aðkomu fjármálafyrirtækja í nefndarálitinu. Bent var á að nokkuð óskýrt væri í lögunum hver væri heimild fjármálafyrirtækja og annarra aðila sem eignast hafa eign í skuldaskilum til sölu á fasteignum. Bankar eru ekki bundnir af neinum reglum frumvarpsins. Nefndin bendir á að fjármálafyrirtæki sem selur eigin eignir teljist ekki fasteignasali í skilningi laganna og falli því ekki undir lögin. Í þeim tilvikum þegar fasteignasala er falið að selja fasteign fyrir fjármálafyrirtæki gilda lögin hins vegar fullum fetum. Mögulegt væri að breyta ákvæðum á þann veg að frekari skyldur væru lagðar á fjármálafyrirtæki við sölu fasteigna sem fjármálafyrirtækin eignast, en það fellur ekki undir það frumvarp sem hér er til umfjöllunar.
Þetta frumvarp tekur á álitamáli sem reyndar hefur verið dæmt um í Hæstarétti, þ.e. afnumin er skylduaðild að Félagi fasteignasala og verður breyting á eftirliti. Ég vísa til nefndarálitsins og frumvarpsins í þeim efnum. Sömuleiðis er hnykkt á ákvæðum um milligöngu vegna sölu eigna skyldmenna og þeirra sem viðkomandi eru tengdir. Í breytingartillögu sem nefndin flytur segir að fasteignasala sé óheimil milliganga um kaup og sölu á fasteign ef a) hann eða maki hans, starfsmaður eða maki starfsmanns er eigandi hennar eða verulegs hluta fasteignasölunnar, b) hann er eða hefur verið maki eiganda, skyldur eða mægður eigandi í beinan legg eða öðrum lið til hliðar eða er tengdur eiganda með sama hætti vegna ættleiðingar, c) tengist fyrirsvarsmanni eða umboðsmanni eiganda með þeim hætti sem segir í b-lið eða að öðru leyti eru fyrir hendi aðstæður sem eru til þess fallnar að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu. Hér er verið að hnykkja á vanhæfnissjónarmiðum þannig að kaupandi og seljandi viti með vissu að um engin óeðlileg vensl sé að ræða.
Ég vísa einnig til breytingartillagna. Á á einum stað í breytingartillögu stendur að fasteignasali skuli í hvívetna leysa af hendi störf sín svo sem góðar viðskiptavenjur og siðareglur bjóða. Með því að skylduaðildin er felld niður er ekki um að ræða að lögbundnar siðareglur Félags fasteignasala séu til staðar. Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu að Félag fasteignasala starfi og hafi siðareglur sem fasteignasalar gangast undir, en sömuleiðis geta fasteignasalar innleitt sínar eigin siðareglur.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem liggja fyrir í þskj. 1235 í breytingartillögu.
Undir þetta frumvarp rita eftirtaldir nefndarmenn efnahags- og viðskiptanefndar þann 22. apríl 2015: Frosti Sigurjónsson formaður, Vilhjálmur Bjarnason framsögumaður, Willum Þór Þórsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Áslaug María Friðriksdóttir, Sigríður Á. Andersen, með fyrirvara, og Steingrímur J. Sigfússon, með fyrirvara.
Árni Páll Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Allt eru þetta hv. alþingismenn.
Ég held ég hafi mál mitt ekki lengra að sinni og vísa enn og aftur til nefndarálits og breytingartillagna.
Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.