framkvæmd samnings um klasasprengjur.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar vegna frumvarps til laga um framkvæmd samnings um klasasprengjur. Frumvarpið er flutt til að gera Íslandi kleift að fullgilda samning um klasasprengjur frá árinu 2008 með því að gera viðeigandi breytingu á gildandi refsilögsögu í samræmi við ákvæði þess samnings.
Í nefndaráliti er í stuttu máli vikið að sögu þessa samnings en til að gera langa sögu stutta er hægt að segja að það liggi nokkuð á að Ísland fullgildi samninginn, enda stendur fyrir dyrum endurskoðun samningsins og væri óviðeigandi ef Ísland hefði ekki fullgilt samninginn þegar kemur að því verki.
Í nefndaráliti er þess getið að við umfjöllun nefndarinnar hafi komið fram að helsta breytingin á refsilögsögu í frumvarpinu felist í heimild til að refsa íslenskum aðilum sem fremja brot í ríkjum sem ekki hafa fullgilt samninginn af sinni hálfu. Þetta er frávik frá þeirri meginreglu að almennt verði ekki refsað fyrir verknað framinn erlendis nema hann teljist jafnframt refsinæmur samkvæmt rétti viðkomandi ríkis.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að samráð hafi verið haft við refsiréttarnefnd við útfærslu innleiðingar samningsins hér á landi. Þess er jafnframt getið að með frumvarpinu séu klasasprengjur bannaðar hér á landi og bannið taki einnig til háttsemi sem falli undir samninginn og íslenskir aðilar fremja erlendis. Bannið mun ná til íslenskra lögaðila sem eru með útibú eða starfsemi erlendis. Í umfjöllun nefndarinnar komu fram tvær spurningar fyrst og fremst. Annars vegar hvort samningurinn tæki ekki til jarðsprengna, en vísað er til þess að þegar eru í gildi lög frá 2001 um það efni, þannig að jarðsprengjur falla utan gildissviðs þessara laga.
Hitt atriðið sem kom til skoðunar á vettvangi nefndarinnar er spurningin um hlutlæga ábyrgð lögaðila samkvæmt frumvarpinu. Þar er um að ræða frávik frá meginreglu um að sekt fyrirsvarsmanna, starfsmanns eða annars á vegum lögaðilans teljist grundvöllur ábyrgðar lögaðila. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram, eins og segir í nefndarálitinu, sjónarmið því til stuðnings að ganga lengra að þessu leyti til að auðvelda skilvirk viðbrögð við brotum á banni við klasasprengjum og leggja aukna áherslu á alvarleika brota sem felast í framleiðslu eða verslun með þær.
Nefndin tók undir þau sjónarmið sem komu fram í greinargerð með frumvarpinu að leggja bæri hlutlæga ábyrgð á í þessu tilviki, en ítrekar í því sambandi að umrædd ábyrgð lögaðila grundvallist á því að brotið sé framið í þágu viðkomandi lögaðila.
Nefndin var samstiga í þessu máli og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn að hv. þm. Birgittu Jónsdóttur undanskilinni, hún er áheyrnarfulltrúi í nefndinni og lýsti sig samþykka álitinu.