lokafjárlög 2013.
Virðulegi forseti. Ég ætla að segja það hér aftur að ég sé ekki muninn á því að vera ríkisstjórn kröfuhafanna, ríkisstjórn ríka fólksins eða ríkisstjórn vildarvina. Þetta eru allt saman orð sem hafa fallið síðastliðin tvö ár frá hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Það er bara þannig. En sumir eru heilagri í þessu húsi og það hef ég líka oft farið yfir áður. Á meðan svona er talað um núverandi ríkisstjórnarflokka þá kem ég alltaf til með að standa hér upp og verja ríkisstjórnina því að hún hefur sýnt fádæma árangur á einungis tveimur árum. Auðvitað er sárt fyrir hv. þm. Össur Skarphéðinsson að sjá fram á að kosningaloforð beggja flokka eru nánast í höfn á einungis tveimur árum. Ég hef sagt það áður opinberlega að ef hefði verið forgangsraðað á síðasta kjörtímabili þá hefði batinn fyrir íslenskt samfélag komið langtum fyrr.
Ég get ekki gert að því, virðulegi forseti, þó að hv. þm. Össur Skarphéðinsson eigi erfitt með að skilja lokafjárlögin. Hann verður að fá ráðgjöf hjá öðrum en mér við það að skilja hvað stendur í þessum lokafjárlögum.
Það er rétt að eitt hjúkrunarheimili úti á landsbyggðinni, Hulduhlíð á Eskifirði, er búið að keyra mikið fram úr áætlun. Meiri hlutinn í fjárlaganefnd veit vel af þessari framúrkeyrslu og hefur gert ráðstafanir hjá velferðarráðuneytinu. Þegar þingnefndir koma saman eftir lögbundið sumarfrí, sem stendur frá 1. júlí til 15. ágúst, verður þetta eitt af þeim málum sem verður krufið og farið ofan í hvers vegna svona fór. Ég veit sæmilega mikið um hvers vegna þetta gerðist en ég hef ekki tíma til að fara yfir það.
Virðulegi forseti. Ég verð að biðja hv. þm. Össur Skarphéðinsson að leita á önnur mið en til mín sem formanns fjárlaganefndar til að skilja fjárlög yfir höfuð.