ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Hv. þingmanni virðist vera fyrirmunað að svara einföldum spurningum. Ég var ekki að gagnrýna að greiða ætti inn á lífeyrisskuldbindingar. Ég spurði: Telur þingmaðurinn að taka þurfi lán eða á að taka þetta af rekstrarafgangi? Verða þá teknir frá 5 milljarðar á hverju ári frá og með að áætlað er að greiða niður skuldir? Þetta var mjög „konsekvent“ spurning, þannig að ég frábið mér það að ég hafi verið að mótmæla því.
Góð vinnubrögð og áætlanagerð er eitt af því sem þingmaðurinn talar mikið um. Ég spyr: Finnst henni góð vinnubrögð og góð áætlanagerð að gera þetta með þessum hætti þegar fyrir liggur að þetta stenst ekki?
Minni hlutinn er hér með gott fyrra nefndarálit þar sem eru tillögur. Þær eru fólgnar í þeirri gagnrýni sem þar birtist. Í því felst að við gerum athugasemdir sem segja: Þetta er ekki fullnægjandi. Þetta þarf að skoða betur og ræða betur og komast að niðurstöðu.
Þetta er auðvitað ríkisfjármálaáætlun meiri hlutans, vissulega er það svo, en það breytir því ekki að ábendingar minni hlutans eru í því fólgnar sem þar kemur fram. Hv. þingmaður nefndi hér (Forseti hringir.) að við höfum látið hlutina reka á reiðanum. Auðvitað er það ekki svo, virðulegi forseti, að hér sé verið að láta reka á reiðanum með því að ræða jafn mikilvægt (Forseti hringir.) mál og ég trúi að þingmanninum þyki þessi ríkisfjármálaáætlun.