ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað ekki annað hægt en að koma hingað aftur upp þótt ekki hafi nú verið meiningin að tala neitt sérstaklega mikið í þessu máli. Þegar formaður fjárlaganefndar notar stór orð eins og hún gerir gjarnan, átelur minni hlutann fyrir það hvað hann virðist vita lítið og að hann komi ekki með neinar tillögur eða neitt slíkt, þá verður það auðvitað að ræðast hér.
Það sem ég vitnaði til hér áðan og kemur fram í áliti minni hlutans eru ábendingar í formi tillagna sem meiri hlutanum var í lófa lagið að nýta sér en kaus að gera ekki. Hv. þingmaður heldur því fram að við getum bara komið með beinar tillögur í ríkisfjármálaáætlun til að reyna að fá þær samþykktar. Við reyndum auðvitað að hafa áhrif á gang málsins strax á meðan það var til umfjöllunar í nefndinni. Það gekk ekki frekar en það hefði gengið að koma með einhverjar breytingartillögur í þingsal, sem meiri hlutinn hefði þá fellt. Áætlunin virðist hafa verið lögð fram til þess að uppfylla lagaskyldu og þingsköp, en ekki til þess að hún héldi. Það er eins og það hafi aldrei staðið til að hún héldi og að þetta væri eitthvert plagg sem ráðherrann gæti nýtt sér til einhvers konar starfa. Það er auðvitað frekar bagalegt og illa farið með gott má, því að það er nauðsynlegt að gera slíkar áætlanir.
Hv. formaður fjárlaganefndar sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem ríkisfjármálaáætlun hefði verið lögð fram. Það er ekki rétt. Formlegt plagg ber þetta heiti frá árinu 2012, minnir mig, svo að því sé haldið til haga.
Það eru óvissuþættir þarna. Við suma getum við ráðið og aðra ekki eins og gengur og gerist. Þess vegna fannst okkur, þegar ljóst var orðið að plaggið gæti ekki haldið með nokkru móti, að ástæða væri til að reyna að uppfæra það og gera það að lögum svo að það yrði að minnsta kosti sómasamlegt og brúklegt af einhverju tagi því að það er það ekki eins og það kemur hér fyrir.
Mér þykir alveg ótrúlegt að hlusta á hvernig formaður fjárlaganefndar talar til okkar og segir svo í nefndinni að mikilvægt sé að áætlanagerð sé góð og til þess þurfi allar undirliggjandi upplýsingar og allt annað að vera vel úr garði gert. Svo setur hún sig algerlega upp á móti því að þetta grundvallarplagg til næstu ára sé unnið með þeim hætti. Mér er alveg fyrirmunað að skilja slíkt. Ég held að ég sé alveg þokkalega gefin og skilji í sjálfu sér ágætlega það sem þessari áætlun er ætlað að gera.
Það er mjög glæfralegt að halda því fram að það sé búið að ná samningum við kröfuhafa um svona stóra þætti og að strax á næsta eða þarnæsta ári verði 35–40 milljarða svigrúm. Ég vona svo sannarlega að við getum minnkað vaxtaberandi skuldir ríkissjóðs, en ég mundi ekki vilja teygja mig svo langt að halda því fram að það sem nú er að gerast í þessum fyrstu skrefum við losun hafta geti gerst með þeim hætti sem mér finnst hv. formaður fjárlaganefndar tala um.
Það virðist líka einhvern veginn loða við umræðuna hjá formanni fjárlaganefndar að ef tillagan hefði verið samþykkt þá væri svo margt leyst. Sjálf höfum við rætt það í fjárlaganefnd að það þurfi mikla hugarfarsbreytingu og þrátt fyrir að eitthvert regluverk mundi eiga að halda betur utan um þetta þá vitum við að það yrði ekki farið eftir því í hvívetna, ekki frekar en það sem við erum með í höndunum núna eða fjárlögin sem við þurfum að fara eftir, þau eru ítrekað brotin, því miður. Við viljum auðvitað ekki hafa það þannig en þannig er það.
Mér hefur fundist forustumenn þessarar ríkisstjórnar halda því fram að næstum því öll heimsins vandamál leysist við það eitt að nýja frumvarpið um opinber fjármál verði að lögum. Ég hef ekki slíka ofurtrú á því. Þar er hins vegar rammi sem er ágætur og mér þykir miður að hann hafi verið tekinn út í ósætti.