ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Frú forseti. Það er alltaf gaman þegar hv. þm. Vigdís Hauksdóttir tifar sínum léttu fótum hingað inn í þingsal. Það hefur vantað töluvert upp á það síðustu daga þegar við höfum verið að ræða mál sem varða fjármál ríkisins. Hv. þingmaður hóf mál sitt á því að biðjast afsökunar á því að hún hefði ekki komið hingað til þess að mæla fyrir framhaldsnefndarálitum af því hún hefði átt erindi út í bæ. Það er sjálfsagt að taka þá afsökunarbeiðni fullgilda. Það hefur hins vegar verið þannig síðustu daga þegar hún hefur komið hingað og haldið sínar merku ræður og menn hafa haft ýmislegt við þær að athuga að hv. þingmaður hefur jafnan haft hratt á hælinn. Ég rifja það upp að hér fyrr í vikunni strunsaði hún burt úr sal þegar menn (Gripið fram í.) beindu til hennar orðum. (Gripið fram í.) Það kann vel að vera að hv. þingmaður, sem kallar hér fram í, hafi verið í útvarpsviðtali, ég veit ekkert um það. Mér finnst alltaf gaman (VigH: Ég er að segja þér frá því.) þegar hv. þingmaður fer í fjölmiðla. Alltaf er það fróðlegt.
Ég held að þessi umræða hafi skilað verulega miklu. Hv. þingmaður fellst raunar á það í sínu merkilega framhaldsnefndaráliti þó að hún hafi kosið að lesa það ekki hér upp og minnast ekki á það í ræðu sinni. Í framhaldsnefndarálitinu segir að meiri hlutinn telji að fjöldi góðra ábendinga hafi komið fram um tillöguna í þeim umræðum sem við höfum háð um hana. Jafnframt er einfaldlega fallist á það gagnrýnisatriði minni hlutans, sem kom fram við fyrri umr., að það hefði verið betra að senda tillöguna út til umsagnar og það hefði, eins og segir, með leyfi forseta, „getað reynst til bóta við úrvinnslu málsins …“.
Ef hv. þingmaður hefði stjórnað nefnd sinni eins og ætlast má til og farið með þetta mál eins og önnur mikilvæg mál, leitað álits og ráðgjafar eins og við gerum jafnan við öll meiri háttar mál, þá hefði allt þetta þref og stagl verið fullkominn óþarfi. Þá hefði henni verið bent á það sem við höfum verið að finna að af fólki sem hún tekur örugglega meira mark á en þingmönnum stjórnarandstöðunnar.
Hv. þingmaður sagði sjálf í ræðu sinni og reyndar ítrekaði það í andsvörum að það væri tvennt sem gerði að verkum að það væri erfitt að ganga frá þessari fyrstu ríkisfjármálaáætlun þannig að flestir hlutir væru vel hnýttir og í gadda slegnir. Þetta tvennt er annars vegar óloknir kjarasamningar, eins og hún sagði og vísaði sérstaklega til opinberra starfsmanna, og hins vegar sú staðreynd að það er ekki búið að ganga frá lögum sem varða aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að losa fjármálahöft.
Hér er einhver misskilningur í gangi hjá hinum góða formanni fjárlaganefndar, hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur. Hefur það farið fram hjá hv. þingmanni að ríkið fyrir sína parta er búið að geirnegla það hvað á að hámarki að fara í launahækkanir til opinberra starfsmanna? Hefur það virkilega farið fram hjá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur að hér fyrir örfáum dögum, röskri viku, voru samþykkt lög af Alþingi sem bönnuðu verkfall BHM og hjúkrunarfræðinga og sögðu beinlínis fyrir hvernig mætti fara með þá launadeilu í gerðardómi? Það er hægt að reikna það út. Hjúkrunarfræðingar hafa gert það fyrir sína parta, það eru 18,6%. Það var hv. þm. Vigdís Hauksdóttir sem tók þátt í því gerræði með meiri hlutanum að ljúka verkfalli opinberra starfsmanna með þeim hætti. (VigH: Ég var með varamann.) — Eða varamaður fyrir hana. Söm er gjörðin. Ég á við að þótt hv. þingmaður hafi ekki persónulega sett sleggjuna í hausinn á opinberum verkfallsmönnum þá er búið að ganga frá því og (Gripið fram í.) slá í gadda hvað hið opinbera er reiðubúið til að leyfa gerðardómi að ákveða sem laun þeirra. Hið svívirðilegasta í þeim lögum var sú niðurneglda forskrift í frumvarpinu sem var síðan samþykkt gegn atkvæðum okkar allra í stjórnarandstöðunni um það til hvers mátti taka tillit. Það liggur algjörlega ljóst fyrir hvað það er. Eins og ég sagði í tilviki hjúkrunarfræðinga þá er það 18,6%. Það liggur fyrir.
Síðan er það fullkominn misskilningur hjá hv. þingmanni að ekki liggi fyrir hvað mun koma í ríkissjóð vegna aðgerða sem eiga að þjóna því að afnema fjármagnshöftin. Það er hárrétt, eins og hv. þingmaður sagði, að það liggur hér fyrir frumvarp um stöðugleikaskatt. Þessi skattur átti að gefa 862 milljarða. Formaður Framsóknarflokksins hélt mikla ræðu á flokksþingi sínu en talaði reyndar í kjölfar þess fundar um 1.000–1.200 milljarða. Í öllu falli töluðu lögin um 860 milljarða. En formaður Framsóknarflokksins gleymdi að segja frá því á flokksþinginu að kröfuhöfum var líka boðið upp á aðra leið og formaður Framsóknarflokksins gleymdi að segja frá því þegar hann hélt kynningarfundinn í Hörpu að sú leið fæli í sér að ríkisstjórnin byði kröfuhöfum upp á afslátt upp á 400 milljarða. Hvað segir hv. þingmaður við því? Mundi hún kalla þessa ríkisstjórn þá ríkisstjórn kröfuhafanna? Ég ætla ekki að leyfa mér að gera það. Það breytir engu.
Það liggur fyrir, samkvæmt yfirlýsingu hæstv. fjármálaráðherra, að þegar búið er að taka tillit til afsláttarins sem Framsóknarflokkurinn gefur kröfuhöfum þá munu koma í ríkissjóð 400 milljarðar í stöðugleikaframlög. Það er það sem hægt er að taka tillit til.
Svo ég víki nú aðeins nær okkur í tíma þá er það algjörlega ljóst að hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur líður greinilega best annars staðar en á sínum vinnustað, í þingsal, og því hefur hún ekki tekið eftir því með hvaða hætti ríkisstjórnin hefur sjálf sagt að megi fara með þessa peninga. Er það virkilega þannig að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hafi ekki hlustað á ræðu formanns efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Frosta Sigurjónssonar? Hann sagði það hreint út í þessum ræðustól að sú tala sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir fór með hérna áðan og sagði að yrði svigrúm vegna minni vaxtagjalda, þ.e. 35 milljarðar, væri tómt bull. Hv. þingmaður rakti það í ræðu sinni, sem var síðasta ræðan sem flutt var hér um frumvarp um stöðugleikaskatt, að það væri út í hött að nota það sem kæmi til ríkisins í neitt annað en tvennt. Í fyrsta lagi til þess að fylla upp í það gat sem verður þegar skattlagning á slitabúum fellur frá vegna þess að það verða engin slitabú og í öðru lagi til þess að greiða bréfið sem fór á milli Seðlabankans og ríkissjóðs. Með öðrum orðum, þetta eru innan við 200 milljarðar. Allt annað sagði hv. þm. Frosti Sigurjónsson að ríkið yrði að brenna, eyða. Hann notaði þessi orð. Hann sagði með öðrum orðum að það væri ekki hægt að gera ráð fyrir þessu mikla svigrúmi vegna minni vaxtagjalda eins og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir segir.
Ég get nýtt þetta sem dæmi til þess að segja að það er sennilega hárrétt sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir sagði hérna áðan, að hv. formaður fjárlaganefndar vissi ekki hvað sneri upp og hvað sneri niður í fjármálum ríkisins. Það er þess vegna sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir hefur algjörlega rétt fyrir sér þegar hún segir að plagginu, sem við erum að ræða, væri best vísað til ríkisstjórnarinnar sem er fínt orð yfir að segjast ætla að henda því. Þetta er dómurinn eftir að hafa farið yfir áætlunina.
Þegar mál koma til þingsins frá framkvæmdarvaldinu eru þau undir forræði Alþingis. Þá ber nefndum sem fjalla um þau að gera það sjálfstætt, ekki að taka við skipunum frá framkvæmdarvaldinu. Það sem ergir mig við mál hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur og við þetta framhaldsnefndarálit er að þar segir bókstaflega að vegna þessara tveggja óvissuþátta, sem ég nefndi, þá sé ríkisvaldið, framkvæmdarvaldið, ekki í stakk búið til þess að meta hvaða áhrif þessir þættir kunni að hafa á ríkisfjármálin á þessu ári eða næstu fjögur ár. Herra forseti. Var það ekki akkúrat hv. þm. Vigdís Hauksdóttir sem lagði á það áherslu í ræðu áðan að þetta mál væri á forræði þingsins? Að sjálfsögðu. Mér gremst þessi eftirgjöf gagnvart framkvæmdarvaldinu alveg eins og mér gramdist það og ég fann að því í ræðu fyrr í dag að eftir að fjárlaganefnd hafði gert athugasemdir við ýmsar leiðbeiningar sem komu frá fjármálaráðuneytinu við lokafjárlög þá lagði fjárlaganefnd undir forustu hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur niður skottið og gerði engar breytingartillögur. Alveg eins og nú, meiri hluti fjárlaganefndarinnar beiðir upp og gefur það sem afsökun að fjármálaráðuneytið hafi ekki getað unnið þetta upp. Þingið er sjálfstætt. Fjárstjórnarvaldið er hjá þinginu, ekki hjá framkvæmdarvaldinu. Við tökum við tillögum þaðan en við vinnum málin sjálf. Ef hv. þm. Vigdís Hauksdóttir treystir sér ekki til þess að veita þeirri vinnu forustu sem formaður fjárlaganefndar þá ætti hún kannski að finna sér annað hlutskipti innan þingsins. Ræða hv. þingmanns hérna áðan var nefnilega einn samfelldur grátur yfir því að það væri ekki vinnufriður á Alþingi vegna málþófs. Er það málþófsdrottning síðustu ára sem kemur og kvartar undan því að menn hafi tekið hér til máls um fundarstjórn forseta? Ég vil ekki dvelja í fortíðinni en ég gæti farið hér með tölur um það hversu mikið af tíma þingsins hv. þm. Vigdís Hauksdóttir tók í umræður síðustu fjögur árin um fundarstjórn forseta. Það skiptir engu máli á þessum tíma. (VigH: Ég skora á þig að gera það.) Það sem skiptir máli er að jafnvel þó að öll mál þingsins sem eru á dagskrá í dag og þetta mál þar með talið hefðu verið afgreidd fyrir 10 eða 20 dögum þá væri þingið samt enn þá hér í dag. Ástæðan er sú að tvö lykilfrumvörp ríkisstjórnarinnar, um nauðasamninga og um stöðugleikaskattinn, komu ekki fram fyrr en um miðjan júní. Þetta eru lykilfrumvörp. Stjórnarandstaðan féllst á það full af samstarfsvilja að vera hér eins lengi og þyrfti til þess að afgreiða þau mál. Það er þess vegna sem við erum hér. Ég ætla ekki einu sinni að kalla það sleifarlag hjá hæstv. ríkisstjórn vegna þess að ég veit að það mál var erfitt. Það þurfti að vinna vel.
Við vitum það núna, sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur alltaf neitað og sem hæstv. forsætisráðherra hefur alltaf neitað en hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra gekkst hins vegar við í framsöguræðu sinni um stöðugleikaskattinn, að þau þurftu tíma til þess að fara í viðræður og samninga við kröfuhafa. Þá blasir það við, frú forseti, hér í lok þessarar umræðu að eftir að Framsóknarflokkurinn, formaður fjárlaganefndar og formaður Framsóknarflokksins hafa barið sér á brjóst yfir því hversu hetjuleg viðleitni Framsóknarflokksins er gagnvart kröfuhöfum og ýja að því að aðrir sem hafa viljað fara samningaleiðina gagnvart kröfuhöfum séu sekir um eitthvað sem stappi nærri landráði að það er Framsóknarflokkurinn sem hefur forustu um það og hefur samið um 400 milljarða kr. afslátt gagnvart kröfuhöfum. Það hefði þótt saga til næsta bæjar í síðustu kosningabaráttu ef menn hefðu vitað að það yrði Framsóknarflokkurinn sem byði kröfuhöfum afslátt sem er fimm sinnum hærri en skuldaniðurfellingin sem við fengum skýrsluna um í gær. (Gripið fram í: Heyr, heyr!)
Það er þetta sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir verður að hafa til hliðsjónar þegar hún fer stundum hér með ræður sínar um það hversu langt aðrir hafa gengið í þjónkun við erlenda hagsmuni. Enginn íslenskur stjórnmálamaður hefur gengið jafn langt í því að gefa kröfuhöfum afslátt af því sem hann hefur sjálfur reifað í greinargerð með stjórnarfrumvarpi sem ýtrustu markmið ríkisstjórnarinnar. Hver hefði trúað því að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir yrði skjaldmey hæstv. forsætisráðherra í baráttunni fyrir því að gefa kröfuhöfum eftir 400 milljarða?
Frú forseti. Að endingu vil ég svara þeirri spurningu: Ekki ég. Ég hefði aldrei trúað því. Þessar upphæðir liggja hins vegar fyrir. Ef hv. þingmaður nennti að kynna sér það og vildi standa undir skyldum sínum sem formaður fjárlaganefndar þá liggja þessar upphæðir fyrir nú þegar. Þess vegna er hægt að taka þær inn í þessa ríkisfjármálaáætlun en sennilega skammast Framsóknarflokkurinn sín of mikið fyrir það hversu langt hann hefur gengið í þjónkun við kröfuhafa á þessu vori.