144. löggjafarþing — 140. fundur,  30. júní 2015.

úrskurðarnefnd velferðarmála.

207. mál
[15:25]
Horfa

Frsm. minni hluta velfn. (Páll Valur Björnsson) (Bf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd minni hluta velferðarnefndar, þar sem framsögumaður er ekki á staðnum, fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Minni hluti nefndarinnar styður markmið frumvarpsins og lýsir yfir ánægju með þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til. Minni hlutinn telur þær breytingar þó ekki koma nægjanlega til móts við alvarlegar athugasemdir Barnaverndarstofu, umboðsmanns barna o.fl. við það að kærunefnd barnaverndarmála renni í sameinaða úrskurðarnefnd.

Bent var á að barnaverndarmál hefðu mikla sérstöðu og ættu lítið sameiginlegt með öðrum þeim málaflokkum sem til stendur að úrskurðarnefnd velferðarmála fjalli um. Þau krefðust mjög sérhæfðrar þekkingar, ekki aðeins á lögfræði heldur einnig á þroskaferli barna, hæfni foreldra og annarra nákominna til að koma til móts við þarfir barna o.fl. Hætt væri við að í sameiginlegri úrskurðarnefnd yrði fyrir hendi minni sérþekking á barnaverndarmálum en nú er hjá kærunefnd barnaverndarmála, jafnvel þótt mælt yrði sérstaklega fyrir um að einn nefndarmanna í úrskurðarnefnd velferðarmála skyldi hafa sérþekkingu á barnaverndarmálum

Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem veitt var lagagildi hérlendis með lögum nr. 19/2013, skal það sem barni er fyrir bestu ávallt hafa forgang þegar löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn. Minni hlutinn telur ekki sýnt að það sé börnum fyrir bestu að kærunefnd barnaverndarmála renni í úrskurðarnefnd velferðarmála með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir, þrátt fyrir jákvæðar breytingartillögur meiri hlutans. Minni hlutinn leggst því gegn samþykkt frumvarpsins.

Undir þetta skrifa hv. þingmenn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar, sem er framsögumaður, Guðbjartur Hannesson, Páll Valur Björnsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.