ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Ríkisfjármálaáætlun ætti að vera gott plagg. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er lögð fram hér, merkt skref í störfum þessa þings og merkt skref í því hvernig á að fara með ríkisfjármálin. Þess vegna er algjörlega óþolandi, virðulegi forseti, að hér sé Alþingi látið samþykkja marklaust plagg vegna þess að allar forsendur hafa brugðist, eða þær hafa ekki brugðist heldur standast ekki lengur.
Það hefur verið mælt með því að þetta verði dregið til baka til þess að vinna það betur, til þess að gera þetta flotta verkfæri ekki að ónýtu drasli í fyrsta skipti sem það er afgreitt. (Gripið fram í: Heyr, Heyr.)