144. löggjafarþing — 141. fundur,  1. júlí 2015.

plastpokanotkun.

166. mál
[10:37]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar mæli ég hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um að draga úr plastpokanotkun.

Þingsályktunartillagan fjallar um að fela umhverfis- og auðlindaráðherra að finna leiðir til að minnka plastpokanotkun hér á landi. Við val á leiðum verði litið til annarra ríkja í Evrópu þar sem markvisst hefur verið dregið úr plastpokanotkun.

Þá er mælt fyrir um það í þingsályktuninni að aðgerðaáætlun verði birt fyrir 1. mars 2015. Sú dagsetning er nú liðin og þess vegna leggur nefndin til breytingartillögu þannig að í staðinn verði það gert fyrir 1. nóvember. Við höfum fjallað um málið og fengið á fund okkar töluvert af gestum auk þess sem við fengum umsagnir góðar um málið. Notkun á plasti og plastefnum er gríðarlega mikil í samfélagi okkar þar sem plast er notað í mörgum vörum, sem umbúðir utan um vörur og þá fer gríðarlegt magn af plasti í gerð plastpoka.

Plast og plastefni hafa skaðleg áhrif á umhverfið sem rétt er að draga úr og reyna að finna til þess hagkvæmar leiðir. Mikilvægt er þó einnig að horfa ekki á einn þátt í tómarúmi heldur á heildarumhverfisáhrif vara, þ.e. allt frá því að vara er framleidd og þar til henni er fargað. Leita þarf leiða til að tryggja að umhverfisáhrifin haldist í lágmarki allan lífsferil vörunnar. Þá þarf einnig að horfa til þess að plastpokar eru mismunandi á þykkt og þar með þyngd, en það ræður miklu um þau umhverfisáhrif sem koma til af flutningi þeirra. Ending plastpoka er hins vegar mjög góð og það er sú ending sem veldur mestu um umhverfisáhrif þeirra, en þeir brotna afar hægt niður í umhverfinu. Því kann að vera mun umhverfisvænna að nota annars konar poka og þá sérstaklega taupoka eða poka gerða úr öðrum efnum en plasti sem brotna auðveldar niður og nota þá líka oftar en einu sinni, en einn helsti ókosturinn við plastpokanotkunina er hversu sjaldan þeir eru notaðir miðað við endingu þeirra.

Fyrir nefndinni kom fram að Umhverfisstofnun hefur haft frumkvæði að verkefni sem fellur vel að efni þessarar tillögu um að draga úr plastpokanotkun. Verkefnið var fólgið í að greina stöðuna hér á landi og draga saman helstu aðgerðir annarra ríkja og setja fram tillögur um aðgerðir. Gerð var verkefnaáætlun sem auðvelt er að vinna eftir og var áhersla lögð á að hugsanlegar aðgerðir yrðu unnar í samvinnu við hagsmunaaðila, að um þær mundi ríkja sátt og að góð kynning yrði á verkefninu. Að mati nefndarinnar fer efni þessa verkefnis vel saman við þingsályktunartillöguna og teljum við að vinna eigi eitt heildstætt verkefni á grundvelli hennar þar sem þessi tvö verkefni eru lögð saman í eitt myndarlegt.

Þá voru nefndinni einnig kynntar tillögur til breytinga á umbúðatilskipun Evrópusambandsins sem nú er til umræðu í Evrópuþinginu. Ljóst er að mikil umræða er í Evrópu og víðar um að draga úr plastpokanotkun og tekur nefndin undir með Umhverfisstofnun um að nú sé rétti tíminn fyrir stefnumótun og aðgerðir af hálfu ríkisins sem miða að því að draga stórlega úr notkun plastpoka, umhverfinu og samfélaginu öllu til góða.

Mig langar líka að nefna að það eru sveitarfélög hér á landi sem tekið hafa stór skref í þessu efni. Ekki er hægt að fjalla um þetta mál öðruvísi en að minnast á Stykkishólm sem er með áhugavert verkefni í gangi um að reyna að gera bæinn plastpokalausan og hafa fleiri sveitarfélög skoðað þetta.

Þetta mál var fyrst lagt fram á 143. löggjafarþingi af Margréti Gauju Magnúsdóttur, sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar, og er núna endurflutt af hópi þingmanna með hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur í broddi fylkingar. Það er mjög ánægjulegt að þetta mál skuli verða að veruleika vegna þess að hér er stórmál á ferðinni þó að það láti lítið yfir sér, vegna þeirra áhrifa sem plastpokar í umhverfinu hafa.

Undir þetta nefndarálit ritar öll umhverfis- og samgöngunefnd, hv. þm. Höskuldur Þórhallsson, sem er formaður nefndarinnar, sú sem hér stendur og er framsögumaður málsins og hv. þingmenn Haraldur Einarsson, Birgir Ármannsson, Elín Hirst, Róbert Marshall, Svandís Svavarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, en Jón Þór Ólafsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Eins og ég greindi áður frá leggjum við til eina breytingartillögu, að í stað „1. mars 2015“ komi: 1. nóvember 2015.